fbpx
Miðvikudagur 11.desember 2024
Fókus

Fyrsti Pokémon „trade-viðburður“ sem haldinn hefur verið á Íslandi

Einar Þór Sigurðsson
Föstudaginn 27. október 2023 11:05

Barði og Gunnar í Pokéhöllinni standa fyrir viðburðinum ásamt Andra Jónssyni, eiganda Barnaloppunnar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum miklu stærra samfélag en fólk heldur og rosalega gaman að sjá bæði fullorðna og börn taka þátt í söfnun spila, leikjum, námskeiðum og mótum í tengslum við hið stóra og sívinsæla vörumerki Pokémon”, segir Gunnar Valur G. Hermannsson, einn eiganda Pokéhallarinnar í Glæsibæ.

Talsverð eftirvænting ríkir innan íslenska Pokémon-samfélagsins því á morgun fer fram fyrsti svokallaði „trade-viðburður“ sem haldinn hefur verið hér á landi.

Um er að ræða samstarf á milli Pokéhallarinnar og Barnaloppunnar í Skeifunni en eins og nafnið gefur til kynna gefst ungum og öldnum söfnurum og öðrum áhugasömum færi á að bera saman bækur sínar, skiptast á spilum og kaupa og selja spil. Þá verður boðið upp á allskonar uppákomur á viðburðinum sem fram fer í húsnæði Barnaloppunnar annað kvöld á milli klukkan 18 og 22.

„Þetta kvöld sem við erum að skipuleggja er fyrir okkar frábæra og skemmtilega fólk, sem elskar Pokémon og allt í tengslum við Pokémon”, segir Barði Páll Böðvarsson sem er eigandi Pokéhallarinnar ásamt Gunnari.

Sem fyrr segir verða ýmsar uppákomur í gangi fyrir utan að skiptast á spilum. Boðið verður upp á veitingar fyrir alla sem mæta þar til birgðir endast ásamt drykkjum. Einnig verða tilboð á Pokémon pökkum og uppboð á grade-uðum spilum eins og þau kallast í bransanum, en það eru spil sem hafa farið í gegnum mat erlendra matsfyrirtækja sem sérhæfa sig í að meta ástand spila.

Þá verður hægt að kaupa allskonar Pokémon-varning, til dæmis Mystery-box, og þá verður boðið upp á happdrætti. Gestir geta líka átt von á að fá eitthvað gefins.

Verslun Barnaloppunnar verður opin gestum og má því búast við miklu fjöri annað kvöld.

„Ég sem áhugamaður og safnari sjálfur vildi endilega taka þátt og skipuleggja skemmtilegan viðburð tengdan Pokémon,“ segir Andri Jónsson sem er eigandi Barnaloppunnar ásamt eiginkonu sinni, Guðríði. „Og það er enn skemmtilegra að hugsa til þess að þetta hefur ekki verið gert áður hér á landi,” bætir Andri við að lokum.

Viðburðurinn á Facebook.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Talaði Trump af sér?

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Íslensk móðir skráði sig á Tinder og fékk áfall vegna þess sem hún sá: „Mér finnst þetta svo hræðilega rangt“

Íslensk móðir skráði sig á Tinder og fékk áfall vegna þess sem hún sá: „Mér finnst þetta svo hræðilega rangt“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Guðrún gaf Helga Jean súludans í afmælisgjöf – Allir stoppuðu og horfðu

Guðrún gaf Helga Jean súludans í afmælisgjöf – Allir stoppuðu og horfðu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Svava Kristín lenti í slysi á unglingsaldri – „Ég get ekki orðið hlaupari en ég get gert margt annað“

Svava Kristín lenti í slysi á unglingsaldri – „Ég get ekki orðið hlaupari en ég get gert margt annað“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hefur enn ekki leyft börnum sínum að horfa á Home Alone

Hefur enn ekki leyft börnum sínum að horfa á Home Alone