Átta leikir fóru fram í Meistaradeild Evrópu í kvöld þar sem hart var barist. Newcastle tapaði á heimavelli og er sá riðill opinn upp á gátt.
Erling Haaland skoraði sitt fyrsta mark í keppnini í í naunum sigri City.
Í E-riðili var Atletico Madrid í heimsókn hjá Celtic í Glasgow. Leikurinn var afar jafn en heimamenn komust í tvígang yfir í leiknum, það voru hins vegar Antonie Griezmann og svo Alvaro Morata sem sáu um að jafna fyrir Atletico í leiknum.
Í hinum leiknum í riðlinum vann Feyenoord sannfærandi sigur á Lazio. Hollenska liðið er á toppi riðilsins með sex stig, Atletico er með fimm stig og Lazio er með fjögur. Celtic er neðst með eitt stig.
Í F-riðlinum var Borussia Dortmund í heimsókn hjá Newcastle í leik sem var mikilvægur fyrir bæði lið, þar skoraði Felix Nmecha eina mark leiksins og Dortmund vann sigur.
Í hinum leiknum vann PSG góðan sigur á AC Milan. PSG er með sex stig, Dortmund og Newcastle eru með fjögur stig og AC Milan er með tvö stig.
Í G-riðili vann Manchester City mjög nauman sigur á nokkuð slöku liði Young Boys í Sviss. Manuel Akanji skoraði eitt og Erling Haaland skoraði tvö í 1-3 sigri. Í hinum leiknum vann Leipzig sigur á Rauðu stjörnunni.
City er með níu stig í riðlinum, Leipzig er með sex stig en hin liðin með eitt stig hvort.
Í H-riðili heldur Barcelona áfram sigurgöngu sinni og vann liðið 2-1 sigur á Shaktar Donets á heimavelli í kvöld þar sem Ferran Torres skoraði fyrsta markið.
Barcelona er með níu stig en Porto er með sex stig eftir mjög sannfærandi sigur á Royal Antwerp frá Belgíu.