fbpx
Föstudagur 13.desember 2024
Fréttir

Læknar álykta harðlega gegn áfengi og nikótíni og vilja takmarka aðgengi

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 23. október 2023 22:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðalfundur Læknafélags Íslands (LÍ) fyrir árið 2023 var haldinn í Kópavogi föstudaginn 20. október. Kjörnir aðalfundarfulltrúar voru 78 og mættu þeir flestir til fundarins. Heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, ávarpaði aðalfundargesti og svaraði fjölda fyrirspurna.

Í stjórn LÍ starfsárið 2023-2024 verða: Steinunn Þórðardóttir, formaður, sem var síðastliðið vor endurkjörin formaður til næstu tveggja ára, Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson frá Félagi almennra lækna, Margrét Ólafía Tómasdóttir og Oddur Steinarsson frá Félagi íslenskra heimilislækna, Magdalena Ásgeirsdóttir og Theódór Skúli Sigurðsson frá Félagi sjúkrahúslækna og Katrín R. Kemp Guðmundsdóttir og Ragnar Freyr Ingvarsson frá Læknafélagi Reykjavíkur. Stjórnin mun skipta með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund, eins og kemur fram í tilkynningu.

Á aðalfundinum voru samþykktar átta ályktanir til stjórnvalda um málefni sem snerta heilbrigðismál.

Ályktun um stöðu heilbrigðismála óskar eftir því að íslensk stjórnvöld endurskoði heildarskipulag og starfsemi heilbrigðiskerfisins án tafar og bregðist við þeim áskorunum sem heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir. Þeirri vinnu verði Læknafélag Íslands að koma að, eins og félagið hefur margsinnis kallað eftir á liðnum árum.

Ályktun um mönnum lækna skorar á ríkisstjórnina að hefja tafarlaust vinnu við að fjölga læknum, bæta vinnuaðstöðu og draga úr óhóflegu vinnuálagi.

Ályktun um aðgerðir til að minnka skaðleg áhrif áfengisneyslu í íslensku samfélagi og þar með bæta heilsu og félagslega stöðu einstaklinga, fjölskyldna og samfélagsins alls skorar á alþingismenn að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að minnka skaða af áfengisneyslu, sem sé forgangsverkefni í lýðheilsu Íslendinga. Þar sé stýring á aðgengi að áfengi sterkasta vopnið. Aukið aðgengi að áfengi eins og netverslun og heimsending muni valda enn meiri skaða.

Ályktun um nikótínpúða vekur athygli heilbrigðisráðherra á þeirri heilsufarsvá sem nikótínpúðar eru á markaði í dag. Brýnt sé að setja reglugerð sem banni sölu og innflutning á nikótíni í púðum, vökvum eða öðru formi með bragðefnum.

Ályktun um nikótínvörur skorar á heilbrigðisráðherra og alla þingmenn að beita sér fyrir að fella allar vörur sem innihalda nikótín, aðrar en lyf, undir tóbaksvarnarlög. Það styrki umgjör sölu þessara vara og minnki líkur á að fyrri árangur í tóbaksvörnum glatist.

Ályktun varðandi bætta réttarstöðu lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna og öryggi sjúklinga hvetur Alþingi til að staðfesta breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, lögum um landlækni og lýðheilsu og lögum um réttindi sjúklinga varðandi refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rannsókn alvarlegra atvika.

Ályktun um Sjúkrahúsið á Akureyri fer fram á að stjórnvöld tryggi fjárveitingar til Sjúkrahússins á Akureyri svo að hægt sé að styrkja faglega stöðu sjúkrahússins sem varasjúkrahúss landsins og miðstöðvar sjúkraflugs á Íslandi.

Ályktun um viðvarandi lyfjaskort og undanþágulyf kallar eftir aðgerðum vegna viðvarandi lyfjaskorts og til að tryggja öryggi sjúklinga. Þar segir að ítrekað hafi komið upp sú staða að nauðsynleg lyf eru ekki fáanleg, hafi ekki markaðsleyfi á Íslandi eða hafi ekki verið markaðssett af lyfjafyrirtækum hérlendis. Það sé óviðunandi ástand. Kallað er eftir raunhæfum aðgerðum til að koma í veg fyrir lyfjaskort og til að knýja fram markaðsleyfi fyrir nauðsynleg og mikið notuð lyf. Aðalfundurinn telur jafnframt að sama ábyrgð skuli gilda um öll lyf á Íslandi óháð því hvort þau séu með undanþáguskráningu eða á skortslista Lyfjastofnunar. Þannig skuli víkja úr lyfjalögum ákvæðum um viðbótarábyrgð lækna við ávísun undanþágulyfja enda sé það ekki í valdi læknis að tryggja aðgengi og skráningu á nauðsynlegum lyfjum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Ætluðu að slaka á í Sky Lagoon en annað kom á daginn – „Vá! Þetta er brjálað“

Ætluðu að slaka á í Sky Lagoon en annað kom á daginn – „Vá! Þetta er brjálað“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Ristaðar möndlur og jólasveinar í Bónus

Ristaðar möndlur og jólasveinar í Bónus
Fréttir
Í gær

Sigurði Árna lögreglumanni ekki gerð refsing fyrir ofbeldi gegn fanga – „Við verðum skelkaðir í aðstæðum og gerum mistök“

Sigurði Árna lögreglumanni ekki gerð refsing fyrir ofbeldi gegn fanga – „Við verðum skelkaðir í aðstæðum og gerum mistök“
Fréttir
Í gær

Síbrotamaður slær ekki slöku við þrátt fyrir margra liða ákæru – Fær gistingu í boði skattgreiðenda yfir hátíðarnar

Síbrotamaður slær ekki slöku við þrátt fyrir margra liða ákæru – Fær gistingu í boði skattgreiðenda yfir hátíðarnar
Fréttir
Í gær

Sparnaðurinn reyndist öryrkja dýrkeyptur

Sparnaðurinn reyndist öryrkja dýrkeyptur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nafntogaðir einstaklingar rökræða neikvæðan dóm um tónleika Bríetar – „Það getur ekki alltaf allt verið gott“

Nafntogaðir einstaklingar rökræða neikvæðan dóm um tónleika Bríetar – „Það getur ekki alltaf allt verið gott“