Frábær grænmetisréttur sem er tilvalinn í kvöldmatinn!
Hráefni
- 3 hvítlauksrif, smátt söxuð
- 1/2 laukur, smátt saxaður
- 600 g Blómkál
- 400 g Saxaðir tómatar
- 2.5 dl Kókosmjólk
- 1 stk Grænmetiskraftur
- 5 g Kóríander
- 10 ml Olía til steikingar
- 1.5 msk Garam masala
- 1 tsk Kóríanderkrydd
- 1 tsk Cumin
- 1 tsk Paprikukrydd
- 1 stk Salt
- 1 stk Pipar
- Kjúklingabaunir
Leiðbeiningar
- Hitið olíu á pönnu og steikið lauk, hvítlauk, garam masala, kóríander, kúmin og paprikukrydd í um 1-2 mínútur (hrærið stöðugt) eða þar til blandan er farin að gefa frá sér góðan ilm.
- Skerið blómkálið niður og bætið út á pönnuna og steikið áfram í 2 mínútur.
- Bætið þá tómötum, kókosmjólk, vatni og grænmetiskrafti saman við og látið malla í 15 mínútur eða þar til sósan hefur þykknað.
- Bætið kjúklingabaunum saman við og hitið í 3-4 mínútur til viðbótar.
- Setjið í skál og berið fram með hrísgrjónum og etv. fersku kóríander.
Þú getur keypt allt sem þarf í þessa uppskrift og annað fyrir vikuna á Heimkaup, og fengið vörurnar sendar heim eða í vinnuna, einfalt og þægilegt.