Frábær grillmáltíð fyrir helgina! Með þessari máltíð marineraði ég kjúklinginn upp úr hunangs bbq sósu og bar hann svo fram með grilluðu grænmeti og “Garlic Aioli” og “Chipotle Aioli” – báðar geggjaðar.
Hráefni
Grillað grænmeti
- 1 Paprikur, skornar í bita
- 1 Rauðlaukar, skornar í bita
- 1 lítill kúrbítur, skorinn langsum
- 10 stk Kirsuberjatómatar
- Timían
- Salt
- 75 g Mexíkóostur
Sósur
- Hvítlauks Aioli sósa
- Chipotle Aioli sósa
- 1400 g Kjúklingalæri
- 330 ml Honey barbecue sósa
- Grillpinnar
Leiðbeiningar
- Skerið kjúklingalærin í munnbita. Setjið í stóra skál og hellið hunangs bbq sósunni yfir kjúklinginn og blandið vel saman. Marinerið eins lengi og tími gefst.
- Skerið grænmetið niður, blandið saman við ólífuolíu og kryddið með timían og salti. Setjið á grillbakka og grillið. Látið mexikóostinn saman við undir lok grilltímans.
- Þræðið kjúklingalærin upp á grillpinna og grillið. Penslið með marineringunni og snúið kjúklinginum reglulega svo hann eldist vel á öllum hliðum.
- Berið fram með góðum sósum eins og Garlic Aioli og Habanero Mango frá Stonewall Kitchen.
Þú getur keypt allt sem þarf í þessa uppskrift og annað fyrir vikuna á Heimkaup, og fengið vörurnar sendar heim eða í vinnuna, einfalt og þægilegt.