Íþróttavikan kemur út alla föstudaga á 433.is og í Sjónvarpi Símans. Þar fá þeir Helgi Fannar Sigurðsson og Hrafnkell Freyr Ágústsson til sín góðan gest og ræða það helsta úr heimi íþrótta. Að þessu sinni var gesturinn fótboltaþjálfarinn og hlaðvarpsstjarnan Viktor Unnar Illugason.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, sem hætti hjá Breiðabliki á dögunum, er tekinn við Haugesund í norsku úrvalsdeildinni en þar er liðið í mikilli fallbaráttu.
„Ég hef heyrt fólk tala um að þetta yrði vont skref ef þeir falla en ég er ekki sammála því. Þá fær hann bara meira svigrúm til að búa til sitt lið.
Að það sé skref niður á við að fara í norsku B-deildina er bara kjaftæði. Þetta er miklu stærri klúbbur, það mæta miklu fleiri á völlinn, meiri peningar. Hvort sem þeir halda sér uppi eða ekki er þetta bara frábært skref í alla staði,“ segir Hrafnkell.
Viktor viðurkennir að það sé leiðinlegt að missa Óskar úr deildinni og þá sérstaklega vegna rígs hans við Arnar Gunnlaugsson, þjálfara Víkings.
„Það er auðvitað leiðinlegt en Dóri (Halldór Árnason nýr þjálfari Blika) hefur sýnt að hann gæti alveg haldið þessu áfram.“
Umræðan í heild er í spilaranum.