Eva fékk svakaleg ofnæmisviðbrögð, stokkbólgnaði og endaði með að þurfa að fá þrjá sterapoka í æð á sjúkrahúsi á sólareyjunni.
„Ég ákvað að vera smá skvísa á meðan ég myndi heimsækja mömmu, sem býr á Tenerife, og fara í augnháralengingu,“ segir hún í samtali við DV.
Hún fann ekki fyrir neinu samdægurs og flaug út næsta morgun. „Fyrsta sem mamma sagði við mig þegar hún sá mig var: „Hvað er í gangi með augun þín?““ Ég var þá orðin mjög bólgin og rauð og leit út fyrir að hafa grátið mikið. Ég tók augnhárin af, þreif augun og lagaðist helling. Bólgan á leið niður og allt í blóma,“ segir hún.
Eva fór bjartsýn að sofa. „Ég vaknaði um nóttina með þvílíkan þrýsting í augunum og gat varla opnað þau og sá mjög óskýrt. Ég fór fram og kíkti í spegil og fékk vægt taugaáfall,“ segir hún.
Eva tók ofnæmislyf, þreif aftur augun og sofnaði með poka af klökum yfir augunum.
„Ég var ennþá verri næsta morgun. Mjög rauð og erfitt að halda augunum opnum.“ Á þessum tímapunkti ákvað hún að leita til læknis.
„Mamma býr úti og það er heilsugæsla í húsinu hennar. Við fórum þangað en okkur var strax sagt að fara á bráðamóttöku, sem við gerðum. Ég þurfti að bíða ótrúlega stutt, var eiginlega strax tekin inn. Ég var send í blóðprufu og fékk svo þrjá poka af sterkum sterakúr í æð.“
Heilbrigðisstarfsfólk á sjúkrahúsinu vildi að Eva myndi leggjast inn yfir nótt en eftir að hafa talað við lækninn fékk Eva að fara heim til móður sinnar með uppáskrifuð lyf, en móðir hennar er hjúkrunarfræðingur og Eva því í mjög góðum höndum.
Eva hefur farið einu sinni áður í augnháralengingu og allt gengið vel. „Þetta var eitthvað annað lím sem var notað núna, en það er talið að þetta hafi verið ofnæmisviðbrögð við líminu. Þetta hefur aldrei komið fyrir áður hjá þeirri sem setti augnhárin á mig og ekkert við hana að sakast. Það eru mjög litlar líkur að svona gerist, en þetta gerðist fyrir mig,“ segir Eva sem heldur í jákvæðnina.
„Ég er líka þakklát fyrir að vera hérna, ég get ekki ímyndað mér ef ég hefði verið að fljúga eitthvert lengst í burtu.“
Eva heldur úti hlaðvarpinu Grænkerið. Hægt er að hlusta á þættina hér en nýlegur þáttur þar sem læknirinn Rósa Líf Darradóttir var gestur vakti mikla athygli fyrr í október.
Sjá einnig: Íslenskur læknir vill veganvæða heilbrigðiskerfið