fbpx
Föstudagur 13.desember 2024
Fréttir

Sú sem sló stúlku utan undir á Hótel Örk er búsett á Íslandi

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. október 2023 13:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sú sem löðrungaði breska stúlku á göngum Hótel Arkar síðastliðinn föstudag er búsett á Íslandi. Þetta staðfestir Sveinn Kristján Rúnarsson,yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við fréttastofu RÚV.  Ekki liggur fyrir hvort konan starfi á vegum íslensks ferðaþjónustufyrirtækis né hvort að hún sé í félagi leiðsögumanna hérlendis.

Eins og DV greindi frá fyrr í dag fordæmir stjórn Leiðsagnar – Félags leiðsögumanna atvikið en það hefur vakið mikla athygli utan landsteinanna. Breskir fjölmiðlar hafa þannig fjallað ítarlega um málið en stúlkan sem var slegin er nemandi í Harris Girls Academy Bromley í New Beckenham og var hér með skólafélögum sínum í ferðalagi.

Móðir stúlkunnar sem var slegin lýsti atvikinu í samtali við breska fjölmiðla.

Sagði hún að löðrungurinn hafi átt sér stað eftir að dóttir hennar kom vinkonu sinni til varna er fararstjórinn öskraði á hana.

„Dóttir mín bað hana kurteisislega að slaka á og þá var hún slegin. Ef barnið mitt væri hvítt þá held ég að þetta hefði ekki gerst. Fararstjórinn sló ekki vinkonu dóttur minnar, sem er hvít, eða einu sinni slegið í átt að henni. En henni fannst í lagi að slá barnið mitt. Þetta er raunveruleikinn sem við búum við. Svart fólk nýtur ekki virðingar, það er ekki talið hafa gildi og er ekki samþykkt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“
Fréttir
Í gær

Henrietta segir foreldrajafnrétti stærsta jafnréttismálið – „Þetta misrétti hef ég upplifað á eigin skinni“

Henrietta segir foreldrajafnrétti stærsta jafnréttismálið – „Þetta misrétti hef ég upplifað á eigin skinni“
Fréttir
Í gær

Tók meira en tvö ár að fá svör frá Reykjavíkurborg

Tók meira en tvö ár að fá svör frá Reykjavíkurborg