DV fjallaði um atvikið á mánudag en um var að ræða hópferð bresks kvennaskóla, Harris Girls Academy, til Íslands. Hópurinn kom heim til Bretlands á laugardag og greindi breska blaðið Mirror frá atvikinu á mánudag.
Í myndbandinu sást fullorðin hvít manneskja löðrunga ungan hörundsdökkan nemanda. Móðir stúlkunnar sem var slegin lýsti atvikinu í samtali við breska fjölmiðla.
Sagði hún að löðrungurinn hafi átt sér stað eftir að dóttir hennar kom vinkonu sinni til varna er fararstjórinn öskraði á hana.
„Dóttir mín bað hana kurteisislega að slaka á og þá var hún slegin. Ef barnið mitt væri hvítt þá held ég að þetta hefði ekki gerst. Fararstjórinn sló ekki vinkonu dóttur minnar, sem er hvít, eða einu sinni slegið í átt að henni. En henni fannst í lagi að slá barnið mitt. Þetta er raunveruleikinn sem við búum við. Svart fólk nýtur ekki virðingar, það er ekki talið hafa gildi og er ekki samþykkt.“
Í ályktun leiðsagnar er hörðum orðum farið um atvikið.
„Þetta ömurlega háttalag á sér enga hliðstæðu meðal leiðsögumanna hérlendis,“ segir meðal annars auk þess sem vísað er í siðareglur leiðsögumanna þar sem fram kemur að leiðsögumaður taki ekki undir nokkrum kringumstæðum þátt í áreitni, einelti eða ofbeldi af neinu tagi.
„Augljóst er að atvik þetta stríðir alfarið gegn siðareglum félagsins og er að mati stjórnar lögreglumál fyrst og fremst.
Það er von stjórnar Leiðsagnar að hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu, hérlendis sem og erlendis átti sig á að hér er um vítavert háttalag að ræða sem á engan hátt endurspeglar þá faglegu og vingjarnlegu þjónustu sem leiðsögumenn hérlendis eru þekktir fyrir.
Stjórn sendir öllum í Harris Girls Academy Bromley í New Beckenham hlýjar kveðjur og vonast til að stúlkan sem fyrir árásinni varð jafni sig fljótlega.“