fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Fókus

,,Flestir þurfa áföll til að finna þakklætið”

Fókus
Mánudaginn 16. október 2023 11:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ari Jónsson ólst upp við erfiðar aðstæður, en hann segist í dag horfa á erfiðleikana úr æsku sem gjöf, enda þurfi allir að glíma við erfiða hluti til að styrkja skapgerðina. Ari, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar  vinnur sem hugarfarsþjálfari og segist dreyma um að hvetja fólk til að taka fulla ábyrgð á eigin lífi.

Ætlaði ekki að festast í fórnarlambinu

,,Mamma og pabbi skilja þegar ég er bara þriggja ára gamall, þannig að ég ólst upp með einstæðri móður og það var á köflum mjög erfitt. Það var mjög lítið til og við vorum fátæk. Þegar við bjuggum hérna í Reykjavík bjuggum við til dæmis um tíma undir körfuboltavelli, þannig að ég vaknaði aftur og aftur um miðnætti sem kornungur drengur þegar ég átti að vera í leikskóla daginn eftir og fékk ekki svefninn sem ég þurfti. Það er bara lítið dæmi, en í grunninn var margt mjög erfitt hjá okkur, en í dag sé ég þessa erfiðleika sem jákvæðan hlut, af því að þeir hafa styrkt skapgerðina mína og gert mig að öflugri og sterkari einstakling. Þessir hlutir hafa líka styrkt samband mitt við foreldra mína og gert það betra. Við þurfum öll að velja hvernig við tökumst á við erfiðleika og hvort við tökum ábyrgð eða festumst í fórnarlambinu.”

Í miklum tilvistarpælingum sem barn

Ari talar í þættinum um hvernig áföll móta fólk annað hvort á jákvæðan eða neikvæðan hátt og tilvistarspurningar sem allir hafi á bakvið eyrað:

,,Við erum öll að díla við sömu hlutina þegar við komumst að kjarnanum. Þetta er náttúrulega ævilöng vegferð og það vakna ótal spurningar á leiðinni. Við erum að díla við það frá fyrsta degi að velta því fyrir okkur af hverju við erum yfir höfuð hér. Ég man eftir sjálfum mér sjö ára gömlum að spyrja mömmu mína hver væri tilgangur lífsins. Hún átti erfitt með að svara mér, enda risastór spurning frá svona ungum dreng. En á endanum sagði hún tilganginn vera þann að deila öllu því sem þú hefðir fengið í gegnum tíðina til barnanna þinna. Þó að ég eigi ekki ennþá börn er ég í raun á þessarri vegferð. Að deila með öðrum því sem hefur reynst mér vel og reyna að gera sem mest gagn,” segir Ari og heldur áfram:

,,Ég hef kannski verið óvenjulegt barn að fara svona fljótt í þessar tilvistarpælingar, en ég held að við séum öll með þær á bakvið eyrað alla tíð. Það er bara svo auðvelt að gleyma sér og sleppa því að hugsa um stóru myndina ef fólk er alltaf upptekið. En á endanum nær enginn að flýja þessar stærstu spurningar lífsins.”

Tekur heilsunni aldrei sem sjálfsögðum hlut

Ari vinnur í dag við að aðstoða fólk við að byggja upp góða vana, rétt hugarfar og taka ábyrgð á lífi sínu. Hann segir að í grunninn verðum við að velja hvernig við tökumst á við erfiðar aðstæður, sama hve ósanngjarnar þær virðist í fyrstu.

,,Það eru öll þessi áföll sem fólk gengur í gegnum og allir eiga sín áföll, sama hversu stór þau eru. Sumir lenda í slysi, aðrir ofbeldi og svo framvegis. En það er yfirleitt í kringum áföllin sem fólk fer að spyrja sig spurninga og neyðist til að kafa dýpra. Þá hættir fólk að taka því sem sjálfsögðum hlut að hafa góða heilsu eða geta gert hluti sem áður virtust einfaldir. Ég fékk til að mynda í tvígang brjósklos í baki sem var mjög erfitt fyrir ungan mann. Að geta ekki hreyft mig eins og ég vildi og sjá fyrir mér að ég væri orðinn einhvers konar sjúklingur það sem eftir væri. En ég hef náð að vinna mig til baka og ég í dag tek ég heilsunni aldrei sem sjálfsögðum hlut. Það væri frábært ef við þyrftum ekki áföll til þess að finna þakklætið og tilganginn og ég er að reyna að vekja fólk til umhugsunar, vera vakandi og taka ábyrgð.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hjón fóru á kaffihús í miðbænum – Fengu áfall þegar reikningurinn kom

Íslensk hjón fóru á kaffihús í miðbænum – Fengu áfall þegar reikningurinn kom
Fókus
Í gær

Mynd af hjónunum á veitingastað vekur athygli: Sorglegur sannleikur sem flest pör þekkja

Mynd af hjónunum á veitingastað vekur athygli: Sorglegur sannleikur sem flest pör þekkja
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segja atvikið í bardaganum sýna að úrslitin hafi verið fyrir fram ákveðin

Segja atvikið í bardaganum sýna að úrslitin hafi verið fyrir fram ákveðin
Fókus
Fyrir 2 dögum

Dómnefnd FKA skipuð fyrir árlega viðurkenningarhátíð 

Dómnefnd FKA skipuð fyrir árlega viðurkenningarhátíð 
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lára og lyfjaprinsinn eiga von á erfingja

Lára og lyfjaprinsinn eiga von á erfingja
Fókus
Fyrir 3 dögum

Örlagarík reynslusaga Evu Gunnarsdóttur komin út – Hefur tekist á við mikla erfiðleika

Örlagarík reynslusaga Evu Gunnarsdóttur komin út – Hefur tekist á við mikla erfiðleika
Fókus
Fyrir 3 dögum

Nýfæddu tvíburarnir fengu óhefðbundin nöfn

Nýfæddu tvíburarnir fengu óhefðbundin nöfn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sigmar um móður drengs sem kemur að lokuðum dyrum – „Öll fjölskyldan er í því að passa upp á að drengurinn deyi ekki“

Sigmar um móður drengs sem kemur að lokuðum dyrum – „Öll fjölskyldan er í því að passa upp á að drengurinn deyi ekki“