Þjálfarinn Heiðrún Finnsdóttir var gestur í Fókus, spjallþætti DV. Hún missti föður sinn og stjúpmóður í slysi á Kjalarnesi í lok júní 2020.
Heiðrún segir að það sé ekkert sem getur búið mann undir að fá símtalið frá lögreglunni. Hún dofnaði og missti allan máttinn í fótleggjunum og segist ekki vita hvernig hún hafi komist í gegnum þetta.
Í spilaranum hér að ofan lýsir hún því hvernig það hafi verið að fá símtalið og hvernig sorgarferlið hefur verið.
Horfðu á þáttinn í heild sinni hér, eða hlustaðu á hann á Spotify.
Fylgstu með Heiðrúnu á Instagram.