Afbrotafræðingur telur að konur hafi lengi gegnt ákveðnum hlutverkum innan sænskra glæpagengja en það sé ný staða að þær tengist morðum.
25 ára kona er grunuð um að hafa geymt heimagerða sprengju í íbúð sinni í miðhluta landsins og 37 ára kona er grunuð um að hafa verið tálbeita í fíkniefnaviðskiptum sem áttu að lokka mann úr öðru glæpagengi í gildru svo hægt væri að drepa hann.
Innan glæpagengjanna eru konurnar kallaðar „grænu konurnar“. Þetta eru yfirleitt konur með hreina sakaskrá og eru því ekki í kastljósi lögreglunnar.
Jale Poljarevius, yfirlögregluþjónn, sagði í samtali við Sænska ríkisútvarpið að það hafi verið mistök hjá lögreglunni að vanmeta þátt kvenna innan glæpagengjanna. Hann sagðist telja að konur leiki stórt hlutverk í yfirstandandi átökum glæpagengjanna. „Þær eru mikilvægari en við höldum. Konurnar eru oft mjög greindar og eru utan sjónsviðs okkar. Þess vegna eru þær oft látnar geyma hluti heima hjá sér og stundum eru þær notaðar sem tálbeitur til að lokka mismunandi fórnarlömb út og í verstu tilfellum drepa þau,“ sagði hann. Hann sagðist telja að lögreglan hafi árum saman verið of barnaleg og gengið út frá því að meðlimir glæpagengja séu ákveðnar steríótýpur.
Davis Sausdal, afbrotafræðingur, sagði í samtali við Jótlandspóstinn að „grænu konurnar“ varpi ljósi á ákveðnar andstæður í samfélaginu. „Við ímyndum okkur að konur fremji ekki afbrot og tölfræðin bendir auk þess til þess að það séu aðallega karlar sem fremja afbrot. En það þýðir ekki að konur fremji ekki afbrot og þær geta líka verið félagar í skipulögðum glæpasamtökum“ sagði hann.
Hann sagði það ekki nýtt að konur séu innan glæpasamtaka en að það sé nýtt að þær gegni mikilvægum hlutverkum innan þeirra.