fbpx
Miðvikudagur 11.desember 2024
Fréttir

Þorvaldur sendi Stefáni bréf: Vill að nafn sitt verði fjarlægt – „Myndin er hneyksli að mínum dómi“

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 11. október 2023 13:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, hefur sent Stefáni Eiríkssyni útvarpsstjóra bréf þar sem hann krefst þess að nafn hans verði fjarlægt úr kreditlista myndarinnar Baráttan um Ísland sem sýnd var í tveimur hlutum á dögunum.

Þorvaldur greinir frá þessu á Facebook-síðu og segist hafa séð sig knúinn til að senda Stefáni bréf sem hann birtir sjálfur.

„Ég skrifa til að krefjast þess að nafn mitt verði numið burt án tafar af lista með nöfnum þeirra sem þakkað er í lok beggja hluta heimildamyndarinnar Baráttan um Ísland sem sýnd var í RÚV 8. og 9. október s.l. Myndin er hneyksli að mínum dómi og mér allsendis óviðkomandi,“ segir Þorvaldur í bréfi sínu.

Kurr meðal fólks

Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Samstöðvarinnar og einn af stofnendum Sósíalistaflokksins, greindi frá því á vef Samstöðvarinnar í dag að kurr væri á meðal fólks sem tengdist gerð myndarinnar á fyrri stigum hennar.

Þannig hefði sænski leikstjórinn Bosse Lindquist verið skráður sem handritshöfundur í kynningarefni fyrir myndina en þegar myndin var sýnd var hann sagður einn þriggja leikstjóra. Í umfjöllun Samstöðvarinnar kemur fram að Lindquist hafi sagt sig frá verkinu fyrir löngu síðan vegna ósættis um hvert SagaFilm vildi fara með söguna. Vissi hann ekki af því að sýna ætti myndina.

Þá segir Samstöðin frá því að Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, sé skráður sem ráðgjafi við gerð myndarinnar en hann, líkt og Þorvaldur nú, hafi farið fram á að nafn hans verði afmáð. Myndin sé ekki í neinu samræmi við þá ráðgjöf sem hann veitti.

„Hvítþvottur“ segir þingkona

Myndin hefur verið gagnrýnd talsvert á samfélagsmiðlum síðustu daga. Marinó G. Njálsson, sem var stofnfélagi í Hagsmunasamtökum heimilanna á sínum tíma, tjáði sig til dæmis um myndina á Facebook-síðu sinni. Samtökin voru stofnuð í ársbyrjun 2009 í kjölfar efnahagshrunsins á haustmánuðum 2008.

„Vonbrigði að þessi þáttur var nær allur helgaður rannsóknum á yfirmönnum bankanna, en ekki afleiðingum gjörða þeirra fyrir almenning í landinu,“ sagði hann meðal annars.

Ásta Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins og núverandi formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, tók undir og sagði meðal annars:

„Þvílíkur hvítþvottur og hvað allir voru saklausir, góðir og klárir, eða allt þrennt. Það á að þagga algjörlega niður hvernig farið var með heimilin og alla þá sem tóku á sig skellinn sem „þetta fólk“ olli.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Eldri borgari vann 70 milljónir og nýbakaður tvíburapabbi 35 milljónir í Happdrætti Háskólans

Eldri borgari vann 70 milljónir og nýbakaður tvíburapabbi 35 milljónir í Happdrætti Háskólans
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Sérfræðingar telja að enn sé tími til að stökkva á Bitcoin-vagninn

Sérfræðingar telja að enn sé tími til að stökkva á Bitcoin-vagninn
Fréttir
Í gær

Gamla góða Cocoa Puffs aftur á leið í verslanir

Gamla góða Cocoa Puffs aftur á leið í verslanir
Fréttir
Í gær

Var með mikið magn af OxyContin innvortis

Var með mikið magn af OxyContin innvortis
Fréttir
Í gær

Drápshundarnir í Langholtshverfi hafa drepið ketti og ráðist á fólk – „Hundarnir endurspegla eigendurna“

Drápshundarnir í Langholtshverfi hafa drepið ketti og ráðist á fólk – „Hundarnir endurspegla eigendurna“
Fréttir
Í gær

Mangione sagður hafa „misst vitið“ eftir sársaukafulla aðgerð

Mangione sagður hafa „misst vitið“ eftir sársaukafulla aðgerð