Sigmar gerði atburði gærdagsins, þar sem Bjarni Benediktsson tilkynnti að hann myndi stíga til hliðar sem fjármálaráðherra, að umtalsefni á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.
„Við sjáum myndir: Umboðsmaður Alþingis og nýr Umboðsmaður Bjarna Ben,“ segir Sigmar sem birtir myndir af Skúla Magnússyni og Katrínu Jakobsdóttur.
„Á sama tíma og Bjarni Ben á líklega PR stönt ársins þar sem hann virkar eins og fórnarlamb rangrar niðurstöðu og segist virða Umboðsmann Alþingis (á sama tíma og hann virðir svo sannarlega ekki Umboðsmanninn) þá gefst honum tækifæri á að yfirgefa ráðuneytið sitt sem á ekki auðvelt verk fyrir höndum,“ segir Sigmar og skýtur svo á Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra og formann VG.
„Seinni partinn sama dag þá mætir forsætisráðherra og mærir Bjarna og segir hann alveg mega fá nýtt ráðuneyti, enda hafi hann axlað ábyrgð “ekki gjörða sinna” með því að víkja úr því ráðuneyti sem ákvörðunin snéri að,“ segir hann og botnar ekkert í þessu.
„Krakkar, í hvaða krakkaafmæli erum við stödd? Þarf ekki einhver fullorðinn að koma inn og segja bara allir heim?!“