Sjö karlar drukku sig til dauða árið 2020 en engin kona. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum tölum Eurostat, tölfræðistofnun Evrópusambandsins.
Tíðni þeirra Íslendinga sem drekka sig til dauða á þessu ári var 2,01 á hverja 100 þúsund íbúa. Þetta er nokkuð undir meðaltali Evrópu, sem er 3,57, og einnig lægri tíðni en tíu árum áður. Þá var hún 2,29.
Sú þjóð sem hefur flest dauðsföll tengd áfengisneyslu eru Slóvenar, 17,3 dauðsföll á hverja 100 þúsund íbúa. Þar á eftir koma Pólverjar og Danir en Grikkir eru á botninum með 0,35.
Tölurnar eru nokkuð sveiflukenndar á Íslandi en undanfarin áratug hafa karlar alltaf verið í miklum meirihluta þeirra sem deyja af völdum áfengisneyslu.
Þegar kemur að dauða vegna ofneyslu fíkniefna er tíðnin á Íslandi með þeim hæstu í Evrópu, yfirleitt á bilinu 0,5 til 0,7 á hverja 100 þúsund á ári. Í ljósi smæðarinnar eru tölurnar enn þá sveiflukenndari en með áfengisdauðsföllin. Konur eru þó yfirleitt í meirihluta þeirra sem deyja af völdum ofneyslu fíkniefna.