Hver kannast ekki við Rolo bitana góðu? Hér koma þeir í hollari búningi þar sem karmellan er gerð úr döðlum og hnetusmjöri og kúlunum síðan dýft í dökkt súkkulaði blandað með kókosolíu. Hreint út sagt dásamlegar kúlur til að eiga í kæli nú eða bara borða strax..ommnommm! Fjórir skammtar gera um 16-18 kúlur.
Hráefni
- 200 g Döðlur
- 0.5 msk Hnetusmjör
- 200 g Súkkulaðidropar
- 1 tsk Kókosolía
- 5 g Salt
Leiðbeiningar
- Setjið döðlur og hnetusmjör í matvinnsluvél og blandið þar til það er orðið að mauki.Kælið maukið í frysti í um 10 mínútur og mótið síðan í litlar kúlur. Setjið því næst kúlurnar í frysti í aðrar 10 mínútur.
- Bræðið súkkulaði og kókosolíu saman og dýfið kúlunum í súkkulaðið. Setjið á smörpappír og leyfið súkkulaðinu að harðna. Geymið í kæli eða frysti og laumist í eina og eina eftir löngun.
Þú getur keypt allt sem þarf í þessa uppskrift og annað fyrir vikuna á Heimkaup, og fengið vörurnar sendar heim eða í vinnuna, einfalt og þægilegt.