fbpx
Sunnudagur 05.janúar 2025
Pressan

Óhugnanlegt myndband sýnir hátíðargesti leita skjóls – „Þetta er okkar 11. september“

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 9. október 2023 09:00

Hamasliðar myrtu fjölda ungmenna sem voru á tónlistarhátíð í Ísrael.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um 260 óbreyttir borgarar létust þegar liðsmenn Hamas-samtakanna réðust á gesti Supernova-tónlistarhátíðarinnar í Kibbutz Re‘im, nærri Gaza-ströndinni á laugardag.

Óhugnanlegt myndband sem Daily Mail birti í morgun sýnir hátíðargesti liggja í felum á meðan skothvellir heyrast í bakgrunni.

Ljóst er að langt stríð er fyrir höndum eftir að Hamas-samtökin réðust á Ísrael með flugskeytum og skotárásum vopnaðra uppreisnarmanna um helgina.

Í umfjöllun Daily Mail kemur fram að hátíðargestir hafi verið í góðum gír á hátíðinni og skemmt sér langt fram eftir nóttu þegar loftvarnaflautur, sem áttu að vara við yfirvofandi flugskeytaárásum, byrjuðu að óma um klukkan hálf sjö að morgni laugardags.

Það var eitthvað sem tónleikagestir gátu átt von á en fæstir bjuggust við því að vopnaðir einstaklingar á fjölmörgum ökutækjum myndu mæta og byrja að skjóta á fólk.

Sem fyrr segir hafa að minnsta kosti 260 fundist látnir eftir árásina á hátíðarsvæðið á laugardag og stendur vinna nú yfir við að bera kennsl á líkin. Dæmi eru um að hátíðargestir hafi falið sig í runnum klukkustundum saman þar til þeim varð ljóst að árásarmennirnir væru á bak og burt.

Aðstandendur þeirra sem enn er saknað eftir hátíðina hafa verið hvattir til að koma með persónulega muni þeirra, til dæmis með tannbursta eða hárbursta, til lögreglu til að hægt sé að taka DNA-sýni og bera þau saman við lífsýni úr hinum látnu.

BBC greindi frá því í morgun að skotið hefði verið á sjálfboðaliða sem leita að líkum á Supernova-hátíðarsvæðinu. Yossi Landau, yfirmaður sjálfboðasamtakanna Zaka, segir að 25 fulltrúar samtakanna hafi verið á svæðinu og þeir fundist 162 lík. Þeir kæmust ekki lengra vegna skotárása frá uppreisnarmönnum sem eru í grenndinni.

Að minnsta kosti 700 Ísraelsmenn eru látnir eftir árásir Hamas-liða um helgina og þá eru að minnsta kosti 400 Palestínumenn látnir í gagnárásum ísraelska hersins.

„Þetta er okkar 11. september. Þeir náðu okkur,“ sagði Nir Dinar, háttsettur fulltrúi í ísraelska hernum, við BBC í morgun. Jonathan Conricus, annar hátt settur fulltrúi hersins, segir að um sé að ræða einhvern versta dag í sögu Ísraelsríkis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Maðurinn í Teslunni: Konan fór frá honum um jólin vegna gruns um framhjáhald

Maðurinn í Teslunni: Konan fór frá honum um jólin vegna gruns um framhjáhald
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nóbelsverðlaunahafi segir auknar líkur á að gervigreind útrými mannkyninu

Nóbelsverðlaunahafi segir auknar líkur á að gervigreind útrými mannkyninu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta hefur aspasspákonan að segja um árið 2025

Þetta hefur aspasspákonan að segja um árið 2025
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skoskur grínisti sturlaðist á bandarískum flugvelli

Skoskur grínisti sturlaðist á bandarískum flugvelli
Pressan
Fyrir 4 dögum

Árásarmaðurinn fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum og þjónaði í hernum – Lögregla skoðar möguleg tengsl við ISIS

Árásarmaðurinn fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum og þjónaði í hernum – Lögregla skoðar möguleg tengsl við ISIS
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dularfulla brúin í Skotlandi – Af hverju stökkva hundar í dauðann þegar þeir koma að henni?

Dularfulla brúin í Skotlandi – Af hverju stökkva hundar í dauðann þegar þeir koma að henni?