Hin umdeilda Madelene Wright mætti aftur í fótboltann á dögunum eftir um tveggja ára fjarveru. Nú er hún hins vegar snúin aftur á fótboltavöllinn með enska liðinu Leyton Orient.
Madelene er fyrrum leikmaður Charlton en var rekin þaðan árið 2021. Hún hafði deilt myndböndum af sér að taka inn hláturgas, sem er ekki vel liðið innan fótboltans. Annað myndband fór í umferð af henni að drekka áfengi á meðan hún brunaði áfram á bifreið sinni. Þriðja myndbandið sýndi svo Madelene stunda kynlíf á meðan hún talaði í símann.
Síðan Madalene var rekin hefur hún grætt á tá og fingri með því að birta efni á OnlyFans, þar sem hún er afar vinsæl.
Þrátt fyrir að vera mætt aftur í boltann er Wright ekki hætt á OnlyFans og um helgina minnti hún á sig þar.
Hún setti mynd á Instagram með hlekk á síðu sína þar sem borga þarf fyrir myndir og myndbönd af henni.