Heiftarleg átök milli Ísralesmanna og Palesínumanna sem hófust með árásum Hamas-samtakanna á Ísrael á föstudagskvöld halda áfram í dag. BBC og fjölmargir aðrir miðlar flytja reglulega fréttir af atburðarásinni.
Yfir 300 Ísraelsmenn hafa fallið í átökunum um helgina og svipaður fjöldi Palestínumanna hefur látist í hefndaraðgerðum Ísraelsmanna á Gaza-svæðinu.
Hamas-samtökin tóku um 100 Ísraelsmenn í gíslingu, m.a. óbreytta borgara. Samkvæmt BBC hafa 50 verið látin laus. Meðal gíslanna eru konur og börn, m.a. ófrísk kona.
Ísraelsmenn segjast beina árásum sínum á höfuðstöðvar Hama-liða en samt hafa óbreyttir borgarar fallið í árásum þeirra.
BBC greinir einnig frá því, að samkvæmt utanríkisráðunneyti Ísraels, voru tveir ísraelskir ferðamenn skotnir til bana í Egyptalandi í morgun. Árásarmaðurinn var egypskur. Egypskur fararstjóri var einnig drepinn í árásinni og Ísraelsmaður særðist.
Brottflutningur íbúa af Gaza-ströndinni er hafinn, þar á meðal Ísraelsmanna. Ísraelsstjórn hefur ákveðið að skrúfa fyrir rafmagn til Gaza og stöðva flutning matvæla og eldsneytis þangað. Brottflutningur íbúa er hafinn, samkvæmt Ísraelsmönnum.
Flest ríki hafa fordæmt árásir Hamas en þó ekki Íranir, sem styðja samtökin. Óvíst er hvaða áhrif stríðið hefur á friðarviðræður Ísraels og Saudi-Arabíu, sem hafa verið í gangi, en þær höfðu m.a. að markmiði að S-Arabar myndu viðurkenna tilvist Ísraelsríkis.