Karlmaður á sjötugsaldri lést í vinnuslysi í dag á sveitabæ í Norðfjarðarsveit.
Tilkynning um slysið barst lögreglu laust fyrir klukkan fimm í dag. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirliti.
Ekki er hægt að gefa frekari upplýsingar að svo stöddu.