fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Fréttir

Hvetja ríkisstjórnina til að hækka örorkulífeyri um 12,4%

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 7. október 2023 18:41

Mynd: Unsplash

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðalfundi ÖBÍ réttindasamtaka lauk í dag, fjölmargt var á dagskrá fundarins, sem var vel sóttur og vel heppnaður. 

Alma Ýr Ingólfsdóttir var kjörinn nýr formaður, hún hlaut 57 atkvæði en Rósa María Hjörvar 56. Auðu skilaði 1 fulltrúi. Alma Ýr er því réttkjörinn formaður ÖBÍ réttindasamtaka. Þuríður Harpa Sigurðardóttir lætur af störfum eftir sex ár á stóli formanns. Voru henni færðar miklar þakkir fyrir góð störf í þágu fatlaðs fólks.

Þá voru kjörin í stjórn þau Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir, María M. B. Olsen og Ólafur Jóhann Borgþórsson. Einnig var kjörinn varamaður Halla B. Þorkelsson.


Í tilkynningu um aðalfundinn kemur fram að eftirfarandi ályktun var samþykkt:

Ályktun aðalfundar ÖBÍ réttindasamtaka 2023

Aðalfundur ÖBÍ hvetur ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur til að bregðast með afgerandi hætti við vaxandi fátækt fatlaðs fólks og hækka örorkulífeyri um 12,4% án tafar.

Matarkarfan hefur nú hækkað um 12,4%, húsnæðiskostnaður eykst stöðugt og hækkanir á lífeyri ná varla að halda í við verðbólgu, hvað þá meira. Þau tekjulægstu í íslensku samfélagi verja stærstum hluta tekna sinna í nauðsynjar, miklum mun stærri en aðrir hópar. Það er því hófsöm krafa ÖBÍ réttindasamtaka að lífeyrir verði hækkaður um þessi sömu 12,4%.

Verðbólga ársins er nú 8% en ekki 5,6% eins og fjárlagafrumvarp þessa árs gerði ráð fyrir. Kjarasamningar eru framundan og því allar líkur á að verðbólga haldist há næsta ár og standist ekki verðbólguspá þá sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu upp á 4,9%.

Ríkisstjórnin er minnt á eigin stjórnarsáttmála, en í honum segir: ,,Afkoma örorkulífeyrisþega verður áfram bætt með það að markmiði að bæta sérstaklega kjör þeirra sem lakast standa“. Aðalfundur ÖBÍ krefst þess að stjórnvöld standi við orð sín og tekjulægsti hópur samfélagsins fái lífsnauðsynlega kjarabót.

Greinargerð

Lagt er til að örorkulífeyrir verði hækkaður um 12,4 prósent þann 1. janúar 2024 í stað 4,9 prósenta eins og áætlað er í frumvarpi til fjárlaga. Sú hækkun ætti að stemma stigu við hækkun matar og drykkjar sem er samkvæmt Hagstofu Íslands um 35% af ráðstöfunartekjum tekjulægstu hópa samfélagsins.

Langvarandi verðbólga hefur leikið allflesta Íslendinga grátt en hún bitnar mest á tekjulágum, svo sem fólki með fötlun. Fólk sem nær varla eða ekki endum saman ræður mun síður við hækkandi matarverð, húsnæðiskostnað og annan kostnað sem verðbólgan veldur.

Samkvæmt upplýsingum um verðlag sem Hagstofan birti fyrir septembermánuð hefur matarkarfan hækkað um 12,4 prósent undanfarið ár. Það sem áður kostaði 10.000 kr. kostar nú 12.400 kr.

Verð á húsnæði, hita og rafmagni hefur hækkað um 8,9 prósent, sem gerir tekjulágu fólki enn erfiðara fyrir. Stýrivextir standa í 9,25 prósentum en samkvæmt seðlabankastjóra er allt eins líklegt að stýrivextir verði hækkaðir takist ekki að koma böndum á verðbólguna.

Hækkanir á lífeyri halda ekki í við verðbólgu, sem þýðir að kaupmáttur örorkulífeyristaka hefur rýrnað. Þessu þarf að snúa við. Búa verður fólki með fötlun þau kjör að það geti lifað með reisn.

Dæmi um vandann má sjá í nýrri starfsskýrslu Hjálparstarfs kirkjunnar fyrir starfsárið 2022-2023. Þar kemur fram að 2.438 hafi leitað til Hjálparstarfsins samanborið við 2.175 starfsárið á undan. Þar af eru örorkulífeyristakar rúmur þriðjungur.

„Á nýliðnu starfsári kom skýrt í ljós að sem fyrr eru það einstæðir foreldrar, örorkulífeyrisþegar og innflytjendur sem verst standa þegar kemur að fátækt á Íslandi,“ segir í skýrslunni.

Samkvæmt upplýsingum frá Umboðsmanni skuldara er fatlað fólk sá hópur sem hefur minnst svigrúm til að mæta óvæntum kostnaði sem fylgt getur áföllum og verðlagshækkunum.

Boðuð 4,9 prósent hækkun lífeyris myndi þýða hækkun að lágmarki um 16.092 kr. og að hámarki 21.483 kr. Til samanburðar var þingfararkaup hækkað um 33.140 kr. í ár. Sá hópur stríðir þó ekki við tekjuvanda og finnur mun síður fyrir hækkandi verðlagi og vöxtum.

Hófleg krafa ÖBÍ um 12,4 prósent hækkun þýðir að lífeyrir myndi hækka að lágmarki um 40.722 kr. og að hámarki um 54.365 kr. Þannig má snúa vörn í sókn, vega upp á móti dýrtíðinni og standa við fyrirheit ríkisstjórnarinnar um að bæta kjör þeirra sem lakast standa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sparnaðurinn reyndist öryrkja dýrkeyptur

Sparnaðurinn reyndist öryrkja dýrkeyptur
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Nafntogaðir einstaklingar rökræða neikvæðan dóm um tónleika Bríetar – „Það getur ekki alltaf allt verið gott“

Nafntogaðir einstaklingar rökræða neikvæðan dóm um tónleika Bríetar – „Það getur ekki alltaf allt verið gott“
Fréttir
Í gær

Nettó og Bónus í jólabókaverðstríði — mikill verðmunur á spilum, bókum og Legó

Nettó og Bónus í jólabókaverðstríði — mikill verðmunur á spilum, bókum og Legó
Fréttir
Í gær

Óvinnufær vegna myglu en fær ekki áheyrn í Hæstarétti

Óvinnufær vegna myglu en fær ekki áheyrn í Hæstarétti
Fréttir
Í gær

Gagnrýnir Þorstein fyrir ummæli um verkakonu í frystihúsi – „En hvert skyldi nú sannleiksgildi þessara orða vera?“

Gagnrýnir Þorstein fyrir ummæli um verkakonu í frystihúsi – „En hvert skyldi nú sannleiksgildi þessara orða vera?“
Fréttir
Í gær

Hinn grunaði morðingi Mangione getur ekki stundað kynlíf en er orðinn kyntákn – „Svooooooo heitur“

Hinn grunaði morðingi Mangione getur ekki stundað kynlíf en er orðinn kyntákn – „Svooooooo heitur“
Fréttir
Í gær

Eldri borgari vann 70 milljónir og nýbakaður tvíburapabbi 35 milljónir í Happdrætti Háskólans

Eldri borgari vann 70 milljónir og nýbakaður tvíburapabbi 35 milljónir í Happdrætti Háskólans
Fréttir
Í gær

Sérfræðingar telja að enn sé tími til að stökkva á Bitcoin-vagninn

Sérfræðingar telja að enn sé tími til að stökkva á Bitcoin-vagninn