Áslaug Arna fór þar háðulegum orðum um samráðherra sinn, Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra, í ræðu eins og fram hefur komið.
Björn Leví birti útskýringu á þessu uppátæki á Facebook-síðu sinni og segir að hún sé fyrir fólk sem hefur áhuga á því að vita hvernig stjórnmálin virka innanfrá.
„Eins mikið og allir geta hneykslast á þessu mjög svo ósmekklega uppátæki Áslaugar Örnu þá eru áhrifin af þessu tvíþætt,“ segir hann og heldur áfram:
„1. Þetta spilar hárnákvæmlega inn til fólks sem gæti stutt Sjálfstæðisflokkinn. Þetta aðgreinir Sjálfstæðisflokkinn frá VG – en mikið hefur verið talað um hversu líkir íhaldsflokkar þetta eru þegar allt kemur til alls. Sjallar elska þetta útspil.
2. Þetta hjálpar Svandísi ogVGað fjarlægja sig frá Sjálfstæðisflokknum. Þau fagna þessu örugglega ægilega mikið bara og kvarta ekki baun yfir því (amk innra með sér) að Áslaug Arna hafi gert þetta. Þarna geta þau bent á „sko, við erum ekkert eins. Við erum í alvörunni rosalega ósammála“.
Björn Leví segir að kaldhæðnin við það allt saman er að þau muni halda áfram að starfa í ríkisstjórn næstu tvö árin með áframhaldandi skotum á hvert annað. Það muni svo hjálpa báðum flokkum fyrir næstu kosningar að aðgreina það sem nú er límt saman.
„Á meðan gerist auðvitað ekkert uppbyggilegt. Þannig að, svona fyrir fólk sem heldur að þetta muni valda einhverju uppnámi innan ríkisstjórnarinnar, nei … alls ekki. Þetta verður svona „vel gert, bíddu bara eftir því sem ég ætla að gera á móti“. Sem verður svarað „frábært, ég hlakka til“
Björn Leví segir að svona virki hinn pólitíski leikur.
„Bónus í lokin — svona virka Píratar, að benda á hvernig pólitíski leikurinn virkar svo fólk geti betur áttað sig á því af hverju hitt og þetta er að gerast í pólitíkinni sem er annars illskiljanlegt fyrir fólk utanfrá. Það er okkar pólitíski „leikur“ – Að segja hlutina bara beint út. Þess vegna þola þau okkur ekki.“