fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Pressan

„Bunga, bunga!“ – Kynlífspartíin ótrúlegu

Pressan
Föstudaginn 6. október 2023 04:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Bunga, bunga!“ byrjaði sem grín á milli vina en endaði með að verða að hneykslismáli fyrir einn þeirra.

Það var líbíski einræðisherrann Muammar Gaddafi sem sagði fyrst „Bunga, bunga!“ í gríni en þetta endaði með að vera notað yfir kynlífspartí Silvio Berlusconi, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu.

„Bunga, bunga!“ partíin komust í hámæli 2010 þegar magadansari einn, unglingsstúlka, var handtekin af lögreglunni. Í kjölfarið afhjúpaði hún safarík smáatriði um kynlífspartí Berlusconi.

„Tveir ítalskir stjórnmálamenn eru teknir höndum af afrískum ættbálki og bundnir við staura. Ættbálkahöfðinginn gefur öðrum stjórnmálamanninum kost á að velja á milli þess að deyja eða bunga, bunga. Stjórnmálamaðurinn valdi bunga, bunga.

Bunga, bunga reyndist þýða að stjórnmálamaðurinn var neyddur til að stunda kynlíf. Allir úr ættbálknum neyddu hann til kynlífs og þegar ættarhöfðinginn sneri sér að hinum Ítalanum og spurði hann sömu spurningar, svaraði skelfingu lostinn Ítalinn: „Ég vil heldur deyja.“

Ættarhöfðinginn svaraði: „Gott. Þú munt deyja, en fyrst skulum við stunda svolítið bunga, bunga.““

Eitthvað á þessa leið hljómaði brandarinn þegar Muammar Gaddafi sagði hann. Berlusconi sagði bandaríska blaðamanninum Alan Friedman hann og birti hann brandarann í bók sinn „My Way: Berlusconi in His Own Words“.

Áður en bókin kom út urðu „bunga, bunga“ partí Berlusconi fræg í kjölfar þess að hin 17 ára marokkóska magadansmær Karima El Mahroug var handtekin 2010. Hún hafði stolið skartgripum að verðmæti um 400.000 íslenskra króna.

Silvio Berlusconi. Getty Images

 

 

 

 

 

Þegar Berlusconi frétti af handtöku hennar hringdi hann á lögreglustöðina og beitti áhrifum sínum til að fá hana látna lausa. Hann sagði lögreglunni að Mahrough væri frænka Hosni Mubarak, þáverandi forseta Egyptalands, og fékk hana látna lausa. Þegar saksóknari frétti af þessum afskiptum Berlusconi hóf hann rannsókn á málinu.

Ruby Rubacuori var kölluð til yfirheyrslu vegna málsins og skýrði frá „bunga, bunga“ partíum Berlusconi.

Margar sögur komu fram um þessi partí og komu sumar þeirra frá konum sem fengu greitt fyrir að taka þátt í þeim. Sýna þær að engin bönd héldu Berlusconi þegar kom að því að halda þessi partí.

Í réttarhöldum yfir honum lögðu saksóknarar fram vitnisburð 33 kvenna sem höfðu annað hvort fengið greitt fyrir að taka þátt í partíunum eða loforð um vinnu á einhverri af sjónvarpsstöðvum hans ef þær tækju þátt í skipulögðum kynlífspartíum á hans vegum.

Í þessum kynlífspartíum áttu konurnar meðal annars að taka þátt í erótískri athöfn fyrir Berlusconi og vini hans.

Samkvæmt öðrum sögum lét Berlusconi setja styttur með mjög stóran getnaðarlim inn í herbergi eitt og í kjölfarið voru margar konur látnar sleikja kynfæri styttunnar.

Berlusconi var dæmdur í sjö ára fangelsi 2013 fyrir misnotkun valds og fyrir að hafa greitt ólögráða stúlku fyrir kynlíf. Hann var síðar sýknaður á æðra dómstigi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tik-Tok-maðurinn dæmdur

Tik-Tok-maðurinn dæmdur
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fann bróður sinn eftir 25 ára aðskilnað – Nú hefur sagan tekið óvænta og ljóta stefnu

Fann bróður sinn eftir 25 ára aðskilnað – Nú hefur sagan tekið óvænta og ljóta stefnu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Benjamin Netanyahu í vitnastúkunni í eigin spillingarmáli – „Ég hef beðið þessarar stundar í átta ár“

Benjamin Netanyahu í vitnastúkunni í eigin spillingarmáli – „Ég hef beðið þessarar stundar í átta ár“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lét mömmu sína hringja í þingmenn svo hann geti orðið varnarmálaráðherra – „Hann hljóp heim og klagaði í mömmu“

Lét mömmu sína hringja í þingmenn svo hann geti orðið varnarmálaráðherra – „Hann hljóp heim og klagaði í mömmu“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Morðið á moldríka forstjóranum – Lögregla birtir nýjar myndir, fjölmiðlar misskildu borgarstjóra og Monopoly-seðlar vekja upp spurningar

Morðið á moldríka forstjóranum – Lögregla birtir nýjar myndir, fjölmiðlar misskildu borgarstjóra og Monopoly-seðlar vekja upp spurningar
Pressan
Fyrir 4 dögum

Vinna í kappi við tímann við að bjarga þúsundum úr sýrlensku neðanjarðarfangelsi

Vinna í kappi við tímann við að bjarga þúsundum úr sýrlensku neðanjarðarfangelsi