Hún segir að ef karlmaður segir þessi tilteknu níu orð, þá sé hann að halda framhjá.
Mariah er vinsæll áhrifavaldur, með yfir 260 þúsund fylgjendur á Instagram og 510 þúsund á TikTok.
Á dögunum birti hún myndband sem olli talsverðu fjaðrafoki. Hún sagði að karlmaður segir frasann: „Gjörðu svo vel og trúðu því sem þú vilt“ þegar hann er að svara ásökunum eða spurningum um hugsanlegt framhjáhald, þá er hann að halda framhjá.
„Ef þú ert að spyrja manninn þinn út í hugsanlegt framhjáhald og hann segir: „Gjörðu svo vel og trúðu því sem þú vilt“, þá þykir mér leitt að þurfa að segja ykkur þetta, en sá maður er sekur,“ sagði Mariah.
@xqueenbeyoutifulxhe is guilty🤔
Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa og skiptast netverjar í fylkingar. Fjöldi kvenna taka undir með Mariuh.
„Svo satt, ég man þegar hann sagði þetta við mig. Aldrei leyfa karlmanni að breyta þér í Sherlock Holmes, það er ekki þess virði,“ sagði ein.
„Ég er sammála, því ef hann væri saklaus af hverju er hann þá svona aggresífur.“
„Satt, þeir bara vita ekki hvað þeir eiga að segja því það er búið að góma þá.“
En það voru ekki allir sammála Mariuh.
„Það þýðir ekki að hann sé að halda framhjá. Það þýðir kannski bara að hann ætlar ekki að rífast við óörugga og barnalega manneskju,“ sagði einn netverji.
„Ég geri þetta, ekki því ég er sekur um framhjáhald heldur því ég hef ekki orkuna til að rífast,“ sagði annar.
„Fáðu sönnun áður en þú sakar einhvern um framhjáhald. Ein setning er ekki nóg.“