ILVA á íslandi fagnar 15 ára afmæli, en 15 ár eru frá því að fyrsta verslunin var opnuð árið 2008 á Korputorgi. Í fyrra fluttist sú verslun í nýtt og glæsilegt húsnæði í Kauptúni. Á þessum 15 árum hefur ILVA stækkað og opnað til viðbótar 2 verslanir, ein á Akureyri og önnur á Selfossi, og hafa viðbrögð bæjarbúa við þeim verslunum verið vonum framar.
Í tilefni 15 ára afmælisins blæs ILVA til afmælishátíðar sem mun standa yfir til 10. október. ILVA býður upp á vandaða og fallega hönnun, og nú er tilvalið að kíkja í næstu verslun og gera góð kaup því allar vörur eru á 20% afslætti ásamt sérvöldum afmælisbombum sem eru á enn hærri afslætti.
Við mælum með að fólk skrái sig á viðburðinn okkar á Facebook því þar er til mikils að vinna, ILVA ætlar að gefa afmælisgjöf á hverjum degi afmælishátíðarinnar.
Afslátturinn gildir í öllum verslunum, við hlökkum til að taka á móti þér í næstu verslun.
Sigurður Karlsson framkvæmdastjóri ILVA