fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Matur

Ítalskar steikarkjötbollur í tómat marinara

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 2. október 2023 11:47

Mynd: Heimkaup

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Góðar ítalskar kjöbollur gera eitthvað sérstakt fyrir sálina, það má segja að þær knúsi okkur innan frá. Þessar hafa allt, bragðið, áferðina og mýktina. En það má ekki gleyma hvað það er sem fullkomnar góðar ítalskar kjötbollur. Það er að sjalfsögðu bragðmikið tómat marinara.

Hráefni

  • 700 g Nautahakk
  • 3 hvítlauksrif
  • 2 stk Skarlottu laukur
  • 1 tsk Chilíflögur
  • 1 tsk Heitt pizza krydd
  • 1 tsk Pipar
  • 1 laufblöð af basilíku
  • 0.5 búnt af steinselju
  • 1 eggjarauða
  • 0.5 msk Ítölsk hvítlauksblanda
  • 1/2 msk ítölsk hvítlauksblanda
  • 5 msk Brauðrasp
  • Mjólk
  • Salt

Tómat mariana

  • 3 stk Skarlottulaukur
  • 3 hvítlauksrif
  • 1 stk Rautt chilli
  • 2 msk Hvítvínsedik
  • 800 g Hakkaðir tómatar
  • 0.5 msk oregano
  • 1 pakki Mozzarella

Leiðbeiningar

  1. Kjötbollur: Setjið brauðrasp í bolla og hellið mjólkinni yfir þannig að hún þekji allt raspið, látið standa. Hitið ofninn í 200° yfir og undir hita.
  2. Setjið hakkið í djúpa skál og myndið hreiður í miðjunni. Skerið smátt lauk og hvítlauk. Steikið upp úr ólifuolíu ásamt chillifögum, heitu pizza kryddi og svörtum pipar.
  3. Skerið basil og steinselju. Setjið í hreiðrið basil, steinselju, parmsesan, eggjarauðu, brauðrasp, salt, ítalska hvítlauksblöndu ásamt öllu sem var steikt á pönnunni. Hrærið rólega saman.
  4. Mótið bollur á stærð við golfkúlu, dustið smá hveiti á þær og létt steikið á pönnu. Um 2-3 mín á hvorri hlið.
  5. Færið nú í eldfast mót, helliði sósunni yfir bollurnar, bætið við ferskum mozzarella osti og inni ofn í 15 mín. Berið fram með spaghetti eða tagliatelle.

Þú getur keypt allt sem þarf í þessa uppskrift og annað fyrir vikuna á Heimkaup, og fengið vörurnar sendar heim eða í vinnuna, einfalt og þægilegt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
10.02.2024

Vatnsdeigsbollur með lakkrís og hindberjum að hætti Elenoru

Vatnsdeigsbollur með lakkrís og hindberjum að hætti Elenoru
Matur
28.01.2024

Olympíuleikarnir í matreiðslu hefjast á laugardag – Íslenska kokkalandsliðið ætlar í verðlaunasæti

Olympíuleikarnir í matreiðslu hefjast á laugardag – Íslenska kokkalandsliðið ætlar í verðlaunasæti
Matur
21.12.2023

Grilluð nautalund beint á kolum með brenndum laukum og lauksmjöri  

Grilluð nautalund beint á kolum með brenndum laukum og lauksmjöri  
Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
02.11.2023

B.L.T. með twisti

B.L.T. með twisti
Matur
27.10.2023

Ítölsk tortellini tómatsúpa

Ítölsk tortellini tómatsúpa
Matur
26.10.2023

Tikka masala grænmetisætunnar

Tikka masala grænmetisætunnar