Jale Poljarevius, yfirlögregluþjónn í Uppsala, sagði nýlega í umræðuþætti í Sænska ríkissjónvarpinu SVT að ástandið í Svíþjóð sé svo alvarlegt að það hafi ekki verið hættulegra að vera þar í landi síðan í síðari heimsstyrjöldinni. Í Stokkhólmi og Uppsala hafa á annan tug verið myrtir síðan þann 7. september. Meðal fórnarlambanna eru 13 ára piltur og 17 ára piltur. Í Uppsala eru tveir unglingspiltar grunaðir um að hafa myrt sextuga konu. Öll þessi morð eru talin tengjast átökum glæpagengja.
Mörg morðanna eru talin tengjast glæpasamtökum sem nefnist „Foxtrottnettverket“. Leiðtogi þess er Rawa Majid, sem er oft kallaður „Kúrdíski refurinn“ af bæði vinum og óvinum.
„Stærsta fíkniefnastríð sögunnar í Svíþjóð geisar nú. Rawa Majid stendur í þremur stríðum: Hann tekst á við annað glæpagengi, Dalennettverket, það eru einnig átök innan Foxtrottnettverket og um leið blanda minni glæpahópar, sem hann á í persónulegum útistöðum við, sér í átökin,“ sagði Joakim Palmkvist, blaðamaður og rithöfundur, í samtali við TV2. Hann hefur fylgst vel með sænska glæpaheiminum í rúmlega 20 ár.
„Staðan í Svíþjóð, sérstaklega í Stokkhólmi og Uppsala, er mun hættulegri fyrir almenna borgara en hún hefur verið lengi,“ sagði hann.
Hann sagði að staðan sé á allan hátt flókin en í grunninn snýst þetta allt um fíkniefnaviðskiptin í landinu, sérstaklega með kókaín.
Hann sagði að stríð glæpagengjanna gegn hvert öðru hafi nú breyst og tekið óhugnanlega stefnu. Nú eru það ekki lengur bara meðlimir glæpagengja sem skjóta meðlima annarra glæpagengja. „Þeir drepa ekki bara hvern annan. Þeir drepa ættingja hvers annars. Þetta hefur sést áður í glæpaheiminum en ekki í svo miklum mæli eins og við sjáum í þessum átökum,“ sagði Palmkvist.
Majid er eftirlýstur af sænsku lögreglunni og var úrskurðaður í gæsluvarðhald, að honum fjarstöddu, vegna smygls á 800 kílóum af kókaíni. Talið er að hann haldi sig í Tyrklandi. Alþjóðalögreglan Interpol vill einnig hafa hendur í hári hans.