fbpx
Þriðjudagur 01.apríl 2025
Fréttir

„Gaggalagú“ að flytja Hæstarétt yfir í Safnahúsið

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 22. september 2023 12:30

Egill vill ekki verkefnalitla Hæstaréttardómara í Safnahúsið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason segir hugmyndina að flytja Hæstarétt yfir í Safnahúsið á Hverfisgötu fráleita. Lítið líf sé í kringum dómshús.

„Það er rætt um að færa dómstóla landsins milli húsa. Ein hugmyndin er að flytja Hæstarétt yfir í Safnahúsið við Hverfisgötu. Þetta er í stuttu máli sagt alveg gaggalagú,“ segir Egill í færslu á Facebook.

Bendir hann á að við Hæstarétt sitji sjö dómarar. Þeir hafi ekki mikið að gera eftir að Landsréttur varð að millidómsstigi milli héraðsdómstóla og Hæstarétts.

„Þess vegna er hið glæsilega hús sem var sérstaklega byggt fyrir Hæstarétt orðið of stórt fyrir réttinn og dómssalurinn vannýttur- eða svo er sagt,“ segir Egill.

Bygging fyrir almenning

Við hliðina á stendur Safnahúsið sem byggt var á fyrsta áratug síðustu aldar og tekið í notkun árið 1909. Það sé talsvert stærra hús en Hæstaréttarhúsið og er friðað bæði að utan og innan, „ein glæsilegasta bygging á Íslandi.“

Um tíma voru þar fjögur söfn en nú hefur hluti Listasafns Íslands þar aðsetur. Þar eru einnig haldnir tónleikar og fundir.

„Þetta er hús fyrir almenning að njóta, upplifa, tengjast því besta sem hefur verið gert í okkar byggingarsögu,“ segir Egill. „Þetta er sannkallað menningarhús.“

Mikið líf í Hverfisgötu en ekki dómshúsi

Þá sé Hverfisgatan að verða ein flottasta og skemmtilegasta gata Reykjavíkur að mati Egils. Telur að að gatan eigi einungis eftir að batna. „Lundinn tók yfir Laugaveg en Hverfisgatan er menningarleg,“ segir hann.

En í kringum dómshús sé lítið líf, „and-líf“ eins og Egill orðar það. Fæstir vilji láta sjá sig fara þar inn, ljós séu slökkt snemma og lokað er um helgar.

„Vilji menn tryggja að sama og ekkert lífsmark verði merkjanlegt í hinu stórkostlega Safnahúsi, setja þeir dómstól þangað inn – hina örfáu og fremur verkefnalitlu hæstaréttardómara. Nei, þetta er arfavond hugmynd. Þetta er bygging fyrir fólk og menningu en ekki lagabálka,“ segir hann.

Læra ekkert af Lækjartorgi

Rithöfundurinn og blaðamaðurinn Illugi Jökulsson eru á meðal þeirra sem taka undir með Agli. Illugi bendir á að mikil mistök hafi verið gerð þegar Héraðsdómur Reykjavíkur var fluttur á Lækjartorg. Það hafi sogað allt líf og birtu úr torginu og gert það að dapurlegu svartholi.

„Þessi ömurleg hugmynd er bersýnilega runnin frá þeirri snobbhugsun að hinir ofurfínu dómarar þurfi voða fínt hús undir sig,“ segir Illugi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Gómez hvarf á afmæli yngsta barnsins og fannst 10 dögum síðar í Þorlákshöfn – „Þú ert búinn að valda mér og mínum tilfinningalegum skaða“

Gómez hvarf á afmæli yngsta barnsins og fannst 10 dögum síðar í Þorlákshöfn – „Þú ert búinn að valda mér og mínum tilfinningalegum skaða“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Egill furðu lostinn eftir ferðalag um vegi landsins og margir taka undir – „Hvað veldur og hvað er til ráða?“

Egill furðu lostinn eftir ferðalag um vegi landsins og margir taka undir – „Hvað veldur og hvað er til ráða?“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Notuðu 2.000 lítra af vatni til að slökkva eldinn

Notuðu 2.000 lítra af vatni til að slökkva eldinn
Fréttir
Í gær

Telur útilokað að Ísland gangi í ESB á kjörtímabili Trumps

Telur útilokað að Ísland gangi í ESB á kjörtímabili Trumps
Fréttir
Í gær

Segir rógi, rangfærslum og níði hafa verið beitt gegn Magnúsi Karli

Segir rógi, rangfærslum og níði hafa verið beitt gegn Magnúsi Karli
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gæði vatnsins í Hveragerði ekki viðunandi en ekki talin heilsuspillandi

Gæði vatnsins í Hveragerði ekki viðunandi en ekki talin heilsuspillandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Opinber X-síða Hvíta hússins hneykslar – „Við munum finna ykkur – og við munum drepa ykkur“

Opinber X-síða Hvíta hússins hneykslar – „Við munum finna ykkur – og við munum drepa ykkur“