fbpx
Miðvikudagur 12.febrúar 2025
Fókus

Stelpurnar okkar fylltu á tankinn á Olifa fyrir fyrsta leikinn í Þjóðadeildinni

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 20. september 2023 10:32

Mynd: Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu safnar nú kröftum fyrir fyrsta leikinn í Þjóðadeildinni, gegn Wales, sem fer fram á föstudaginn kl. 18. Stelpurnar okkar gerðu sér glaðan dag til að hrista hópinn saman og heimsóttu veitingastaðinn Olifa La Madre Pizza á Suðurlandsbraut 12, sem er einmitt í eigu fyrrum landsliðsmanns í knattspyrnu, Emils Hallfreðssonar.

Olifa La Madre Pizza er hugarfóstur hjónanna Ásu Maríu Reginsdóttur og Emils, en þau hafa búið á Ítalíu síðastliðin 15 ár þar sem Emil hefur leikið knattspyrnu. Olifa ferðalagið hófst í eldhúsinu hjá þeim á Ítalíu þegar þau stofnuðu Olifa fyrirtækið og hófu að flytja inn ítalskar upprunavottaðar jómfrúarolíur og fleiri hágæða upprunavottaðar vörur undir merkjum Olifa. Nú hefur þetta ferðalag borið nýjan ávöxt í Pala pizzunum á Olifa La Madre pizza. 

Pala pizza heitir tegund pizzunnar sem Olifa hefur nú fært Íslendingum. Þetta er ný gerð af pizzu sem nýtur sívaxandi vinsælda á Ítalíu, höfuðvígi pizzunnar í heiminum. Pala pizza er ólík hinni hefðbundnu Pizza Napoletana á marga vegu, sér í lagi að hún er ekki hringlaga heldur ferhyrnd. Pizzan dregur nafn sitt af ílangri viðarskóflu, Pala, sem notuð er til þess að færa pizzadeigið í ofninn. 

Mynd: Aðsend
Mynd: Aðsend
Mynd: Aðsend
Mynd: Aðsend
Mynd: Aðsend
Mynd: Aðsend

Olifa La Madre Pizza er á tveimur stöðum í Reykjavík, á Suðurlandsbraut 12 þar sem Eldsmiðjan var áður til húsa og í nýrri Krónuverslun í Skeifunni.

Við hvetjum áhugasama til að fylgjast með Olifa og Ásu Regins á Instagram, en Ása  sýnir reglulega frá lífi sínu og fjölskyldunnar í Verona á Ítalíu.

Sjá einnig: Landsliðið safnaði kröftum á Olifa fyrir stórleik móti Portúgal

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Helga Braga um það sem hún þolir ekki í störfum sínum – Segir konur sérstaklega fara yfir strikið

Helga Braga um það sem hún þolir ekki í störfum sínum – Segir konur sérstaklega fara yfir strikið
Fókus
Í gær

„Ég vissi alveg nákvæmlega hversu stórt Tóta Van Helzing gæti orðið“

„Ég vissi alveg nákvæmlega hversu stórt Tóta Van Helzing gæti orðið“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leikskólakennari fór niður hættulega braut eftir swing-partý

Leikskólakennari fór niður hættulega braut eftir swing-partý
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Sýndu Kraft með prjóni“

„Sýndu Kraft með prjóni“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Margrét varð á vegi svikakvenda í Flórída sem höfðu af henni mikið fé

Margrét varð á vegi svikakvenda í Flórída sem höfðu af henni mikið fé
Fókus
Fyrir 3 dögum

Klámstjarnan varanlega fötluð og fjölskyldan fer í mál

Klámstjarnan varanlega fötluð og fjölskyldan fer í mál