fbpx
Miðvikudagur 04.desember 2024
Eyjan

Gagnrýnir fyrsta mál á dagskrá borgarstjórnar eftir sumarleyfi – Hópeflisferð á kostnað skattgreiðenda til Bandaríkjanna rædd í þaula

Eyjan
Þriðjudaginn 5. september 2023 16:15

Samsett mynd en sú fremri var tekin í umræddri ferð borgarráðs

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, er hneyksluð yfir áherslum meirihluta borgarstjórnar en í dag hófst fyrsti fundur eftir langt sumarfrí borgarfulltrúa. Fyrsta mál sem sett var á dagskrá var umræða um ferð borgarráðs til Bandaríkjanna en borgirnar Seattle og Portland voru heimsóttar dagana 20 – 24. ágúst síðastliðinn.

Hildur kallar ferðina „hópeflisferð“ í gagnrýninni færslu á Facebook-síðu sinni og fullyrðir að ólíklegt sé að borgarbúa bíði í ofvæni eftir tíðindum úr reisunni. „Miklu frekar bíður fólk þess að heyra hvernig við hyggjumst útvega börnum þeirra leikskólapláss, hvernig við ætlum að leysa samgönguvandann, tryggja öflugri sorphirðu, aukið framboð húsnæðis og ábyrgari meðför skattfjár, svo eitthvað sé nefnt,“ skrifar Hildur.

„Hvílíkt snertingarleysi við líf venjulegs fólks í Reykjavík“

Bendir hún á að fundartími borgarstjórnar sé takmarður og fjölmörg brýn mál þurfi að ræða. Þau komist mögulega ekki á dagskrá út af tíma sem fór í að ræða „ræða montferð meirihlutans,“ eins og Hildur orðar það.

„Tíðindi og lærdóm úr ferðinni hefði vel mátt draga saman í einföldum tölvupósti öðrum til upplýsinga. Hvílíkt snertingarleysi við líf venjulegs fólks í Reykjavík,“ skrifar Hildur.

Dagur B. Eggertsson var fyrstur á mælendaskrá vegna málsins. Hann sagði það vissulega óvenjulegt að ferð sem þessi væri rædd á vettvangi borgarstjórnar en að tilgangurinn væri sá að fólk fengi innsýn í það af hverju borgarfulltrúar væru yfir höfuð að fara í slíkar heimsóknir. Fór Dagur svo yfir heimsóknina og tilurð hennar í löngu máli og síðan borgarfulltrúar hver af öðrum allt þar til Hildur steig í pontu og kom áðurnefndri gagnrýni á framfæri.

Umræðan tók klukkustund og korter

Alls fór um ein klukkustund og fimmtán mínútur af fundartímanum í umræður um ferðina sem nokkrir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fóru í. Þar á meðal var Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir sem skrifaði grein í Morgunblaðið um upplifun sína af  fentanýlfaraldrinum sem herjar á Portland sem og fleiri borgir Bandaríkjanna.

Sjá einnig: Borgarfulltrúi lýsir heimsókn í borg uppvakninga

Andrés Magnússon, blaðamaður á Morgunblaðinu, furðaði sig líka á málinu og birti mynd af borgarfulltrúunum þar sem sjá má Einar Þorsteinnsson, verðandi borgarstjóra, taka „sjálfu“ í hjólaferð með hópnum.

„Fyrirhyggjuleysið algert, en ferðin snýst um að baða sig í eigin frægðarljóma á kostnað borgarbúa. Það geta þó vesalings borgarfulltrúarnir ekki í Reykjavík, svo það eru skipulagðar slíkar lystireisur til útlanda. Á kostnað útsvarsgreiðenda,“ skrifar Andrés.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Stefnir í afar spennandi nótt hjá Brynjari – Er inni sem jöfnunarmaður

Stefnir í afar spennandi nótt hjá Brynjari – Er inni sem jöfnunarmaður
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokks: „Við höfum engan heillandi leiðtoga með sýn og það er okkur erfitt“ 

Fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokks: „Við höfum engan heillandi leiðtoga með sýn og það er okkur erfitt“ 
Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Hægri eða vinstri? Röng spurning. Það þarf hvort tveggja“

„Hægri eða vinstri? Röng spurning. Það þarf hvort tveggja“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Stefán Einar birtir kosningaspá sína – Telur að Píratar detti út og Sjálfstæðisflokkurinn taki fram úr Samfylkingunni

Stefán Einar birtir kosningaspá sína – Telur að Píratar detti út og Sjálfstæðisflokkurinn taki fram úr Samfylkingunni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Gógó Starr hjólar í Sigmund Davíð – „Mjög opinskátt hatursfullur í garð hinsegin- og trans fólks“

Gógó Starr hjólar í Sigmund Davíð – „Mjög opinskátt hatursfullur í garð hinsegin- og trans fólks“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Samkomulag við Arion banka og Landsbankann um fjármögnun First Water

Samkomulag við Arion banka og Landsbankann um fjármögnun First Water