Rafael Pimenta, umboðsmaður Erling Haaland, gaf ansi sérstakt svar er hann var spurður út í framtíð Erling Haaland.
Mikið er talað um að Haaland sé á leið til Real Madrid á næsta ári eða þá 2025 en í dag er hann leikmaður Manchester City.
Haaland er búinn aðs bæta markametið á Englandi og skoraði 52 mörk í öllum keppnum er City vann þrennuna á síðustu leiktíð.
Pimenta ræddi við El Chiringuito um framtíð Haaland og um hvort að dyrnar væru opnar fyrir Real að sækja hann næsta sumar.
,,Að dyrnar séu opnar getur þýtt marga hluti. Okkar leikmenn geta horft á það þannig að þeir ráða sinni eigin framtíð,“ sagði Pimenta.