Daníel Gunnarsson hefur verið fundinn sekur um að hafa myrt skólasystur sína, Katie Pham, þann 18. maí 2021, og misþyrmt líki hennar í kjölfarið. Kviðdómur héraðsdómstólsins í Kern í Kaliforníuríki komst að þessari niðurstöðu en dómurinn féll á miðvikudaginn og Vísir greindi fyrst frá.
Daníel er 23 ára gamall en faðir hans er íslenskur og móðir hans frá Tékklandi. Mæðginin fluttu til bæjarins Ridgecrest fyrir nokkrum árum síðan. Þar gekk hann í skóla og kynnist þar Katie Pham.
Vikurnar fyrir morðið höfðu Katie og Daníel átt í stuttu ástarsambandi en hann neitaði sök í málinu. Lík Pham fannst í bílskúr á heimili stjúpföður Daníels og var Íslendingurinn handtekinn á vettvangi. Pham var með fjölda stunguáverka á líkama og höfði sem drógu hana til dauða, en talið er að Daníel hafi stungið hana með ísnál. Þá var honum gefið að sök að hafa snert lík Pham með kynferðislegum hætti og var búið að fletta upp skyrtu hennar og toga buxurnar niður þegar lögregla kom að henni látinni á dýnu á gólfi bílskúrsins.
Sjá einnig:Íslendingur grunaður um morð í Bandaríkjunum – Talinn hafa sundurlimað líkið eftir ódæðið
Þá hefur komið fram að Daníel reyndi að svipta sig lífi daginn fyrir morðið með því að keyra á vegg. Var hann sagður hafa verið í uppnámi því að Pham tjáði honum að hún bæri ekki sömu tilfinningar í hans garð og hann til hennar.
Málið frestaðist um nokkurt skeið því dómari taldi að Daníel væri ekki í standi til að koma fyrir dóm og var honum gert að sækja meðferð hjá fagaðila. Að endingu var komist að þeirri niðurstöðu að Daníel væri sakhæfur og fór málið sína leið í réttarkerfinu.
Dómur yfir Daníel verður kveðinn upp þann 25.október næstkomandi en hann á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi.