Hjónin Brynja Nordquist flugfreyja og fyrirsæta og Þórhallur Gunnarsson fyrrverandi framkvæmdastjóri fjölmiðla Sýnar leigja einbýlishús sitt á Nýlendugötu út á Airbnb. Smartland greinir frá.
Húsið skiptist í eldhús, stofu og borðstofu með aðgengi út á svalir og garð, og baðherbergi á neðri hæð, á efri hæð er svefnherbergi.
Húsið er í boði fyrir hámark tvo gesti og og lágmarksleigutími er fjórar nætur. Nóttin kostar 217 dali, auk þrifgjalds 98 dalir og þjónustugjalds Airbnb 169dalir. Fjögurra nótta gisting kostar því 1.134 dali eða tæpar 148 þúsund krónur.
Sjá einnig: Ragnhildur Steinunn leigir einbýlishúsið út á Airbnb
Nánari upplýsingar um eignina má sjá hér.