Vefsíðan, Upshot, rifjar daglega upp fréttir af knattspyrnumönnum sem allir vilja helst gleyma. Trent Alexander-Arnold var á dögunum tekin fyrir í úttekt miðilsins.
Trent komst í fréttirnar árið 2018 þegar kona í Bretlandi leitaði til hans og bað um myndband fyrir unnusta sinn á feðradaginn.
Konan sendi varnarmanni Liverpool skilaboð um stöðu mála og sagðist vera gengin sjö mánuði á leið og vildi gleðja unnusta sinn sem var að verða faðir í fyrsta sinn.
Konan sendi Trent skilaboð í gegnum Instagram og hann svaraði. „Ertu með Snapchat?,“ svaraði varnarmaðurinn knái og samskiptin færðust þangað.
Konan var ansi sátt með þetta og taldi sig vera að fara að fá myndbandskveðju frá Trent fyrir unnusta sinn en það var fljótt að breytast.
„Væri hann ekki glaður ef ég myndi ríða óléttri kærustunni,“ skrifar Trent.
„Hann væri ekki glaður með það, það er á hreinu,“ sagði konan en Trent lét ekki staðar numið þar.
„Fæ ég að ríða óléttri kærustu hans?,“ skrifaði Trent og konan sagði það af og frá að það myndi gerast.
Trent hætti þó ekki þarna og þegar hann sá að konan var að borða banana sendi hann skilaboð. „Ertu að sjúga lim?,“ skrifaði Trent og þegar hann sá að konan var að vista samskipti þeirra var honum brugðið.