Eins og venjulega komum ýmis mál inn á borð lögreglu í gærkvöldi- og nótt. Óvenjulegasta málið, samkvæmt dagbók lögreglu, var tilkynning um mann sem stundaði sjálfsfróun í mestu makindum við hús í miðbænum. Sérstaklega er tekið fram í dagbókinni að athæfið beindist ekki gegn neinum. Lögreglan kom á vettvang og ræddi við þann sem tilkynnti og þann sem svalaði eigin fýsnum en sá er grunaður um að hafa verið undir áhrifum ávanabinandi efna.
Þá var sömuleiðis tilkynnt um mann sem svaf ölvunarsvefni við fyrirtæki í Reykjavík. Þegar laganna verðir vöktu hann þá neytaði hann að gefa upp kennitölu en hann reyndist vera með meint þýfi, vopn og fíkniefni á sér. Var hann þegar handtekinn og var vistaður í klefa vegna rannsókn málsins þar sem hann eflaust gat haldið áfram að sofa. nda sjálfsfróun við húsnæði í Reykjavík sem þó beindist ekki að neinum. Lögregla fór á staðinn og ræddi við tilkynnanda og hinn tilkynnta, sem virtist undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Málið í rannsókn.
Tveir einstaklingar náðust við hnupl í matvöruverslunum. Annar þeirra var afar ósamvinnuþýður og var undir áhrifum. Var hann vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.
Að auki komu upp nokkur umferðalagabrot og tilkynningar um grunnsamlegar mannaferðir