fbpx
Mánudagur 20.janúar 2025
Fókus

Arna Ýr og Vignir Þór eiga von á þriðja barninu – „Fallegasta brúðkaupsgjöfin okkar“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 25. ágúst 2023 12:00

Arna Ýr og Vignir Þór Mynd: instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjónin Arna Ýr Jóns­dótt­ir hjúkrunarfræðinemi og fyrrum Ungfrú Ísland og Miss Universe Iceland og Vign­ir Þór Bolla­son kírópraktor eiga von á þriðja barni sínu. Vísir greindi frá.

Arna Ýr varð kjörin Ungfrú Ísland árið 2015 og Miss Universe Iceland árið 2017. Vignir rekur stofuna Líf Kíróprakt í Kópavogi.

Hjónin giftu sig 1. júlí í sumar, en fyrir eiga þau dótturina Ástrósu Mettu sem er fædd í júní árið 2019 og soninn Nói sem er fæddur í júní árið 2021, en börnin deila afmælisdegi, 21. júní.

Sjá einnig: Arna Ýr og Vignir Þór orðin hjón

Hjónin deila gleðifregnunum snemma en Arna Ýr er komin átta vikur á leið. Segist hún gríðarlega spennt og því ekki viljað bíða með tilkynninguna.

„Eins og þið sáuð eigum við von á barni númer þrjú. Smá Ítalíu brúðkaupsferðarglaðningur sem kom með okkur heim. Yndislegt, við  erum komin stutt en viljum vekja athygli á að því og vera með smá vitundarvakningu að það má tilkynna snemma og ef eitthvað myndi gerast myndum við pott þétt deila því þetta er gangur lífsis. Plús það að það hefur verið erfitt áður fyrr að líða illa og þurfa að skýla sér á bakvið brosandi grímu og allt þetta. Við viljum fara öðruvísi leið að þessu og sýna að það er flott að gera þetta hvernig sem er. Lífið tekur mann í allar áttir og þetta litla kríli er hjartanlega velkomið,“ segja hjónin í myndbandi á Instagram.

„Fallegasta brúðkaupsgjöfin okkar. Það er ekki sjálfsagt að fá að skapa líf inn í þennan heim, við erum full af þakklæti og eftirvæntingu. Að mæta til vinnu eða í skólann með vanlíðan, ógleði, þreytu og allt þar á milli og segjast líða vel til þess að enginn fatti hvað er í gangi er stórt verkefni sem lengi hefur hvílt á herðum verðandi mæðra og gerir enn. Þessi óskrifaða regla að barn undir belti skuli vera leyndarmál þar til 12v sónarskoðun gefi grænt ljós á tilkynningu er ekki eitthvað sem við ætlum taka þátt í í þetta skiptið þó við virðum það heils hugar. Eins hrá og ég er varðandi okkar líf og lifnaðarhætti vil ég taka ykkur með í þetta fallega ferðalag frá degi eitt, að skapa líf,“ skrifar Arna Ýr við myndbandið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Hannes Hólmsteinn opnar sig um sambúðina í Brasilíu – 47 ára aldursmunur

Hannes Hólmsteinn opnar sig um sambúðina í Brasilíu – 47 ára aldursmunur
Fókus
Í gær

Fékk þær erfiðu fréttir að hann yrði líklega ófrjór eftir meðferðina – „Við fengum einn mánuð til að reyna“

Fékk þær erfiðu fréttir að hann yrði líklega ófrjór eftir meðferðina – „Við fengum einn mánuð til að reyna“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tilnefningar til Writers Guild-verðlaunanna

Tilnefningar til Writers Guild-verðlaunanna
Fókus
Fyrir 2 dögum

14 merki þess að veitingastaðurinn er slæmur

14 merki þess að veitingastaðurinn er slæmur
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Einn af helstu kvikmyndahöfundum sögunnar og maður sem bjó til ný viðmið í sjónvarpi“

„Einn af helstu kvikmyndahöfundum sögunnar og maður sem bjó til ný viðmið í sjónvarpi“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það er þjóðarharmur þegar heilt byggðarlag á Íslandi verður fyrir slíkum náttúruhamförum“

„Það er þjóðarharmur þegar heilt byggðarlag á Íslandi verður fyrir slíkum náttúruhamförum“