Hinn afar spennandi Gabri Veiga er að ganga í raðir Al Ahli í Sádi-Arabíu.
Það var útlit fyrir að Veiga, sem spilar með Celta Vigo á Spáni, myndi fara til Napoli og var Celta búið að samþykkja munnlegt 36 milljóna evra tilbooð ítalska félagsins en nú hefur U-beygja átt sér stað og mun miðjumaðurinn skrifa undir hjá Al Ahli.
Toni Kroos, hinn frábæri miðjumaður Real Madrid, er greinilega allt annað en hrifinn af því að Veiga sé að fara til Sádí á þessum aldri.
„Vandræðalegt,“ skrifaði Kroos undir færslu Fabrizio Romano um að Veiga væri að fara til Al Ahli.
Veiga, sem er 21 árs gamall, fetar þar með í fótspor fjölda öflugra leikmanna úr Evrópuboltanum sem heldur í peningana í Sádi-Arabíu í sumar.
Talið er að stjóri Al Ahli, Mathias Jaissle, hafi átt stóran þátt í að sannfæra Veiga um að koma til Sádí.