Bobbi er skærasta nýja samfélagsmiðlastjarna veraldarinnar og hún stofnaði hlaðvarpið „The Really Good Podcast“ í apríl. Fyrstu þættirnir vöktu mikla athygli en það mætti segja að umrætt viðtal við Drake hafi skotið henni upp á stjörnuhimininn.
Þátturinn og brot úr þættinum fengu milljónir áhorfa en Bobbi er þekkt fyrir þurran og kaldhæðnislegan húmor og fyrir að skapa pínlegar aðstæður. Aðdáendum þótti viðtalið sýna Drake í öðru ljósi en vanalega og sló það því í gegn. Það kom því netverjum verulega á óvart þegar Bobbi skyndilega eyddi þættinum af YouTube og Spotify. Hún eyddi líka öllum brotum úr þættinum af samfélagsmiðlum. Þar að auki hætti hún að fylgja Drake á Instagram og rapparinn svaraði í sömu mynt.
Fólk virðist vera flest allt sammála um að það bendir til þess að eitthvað hafi skeð þeirra á milli, rifrildi eða einhvers konar ósætti. Hins vegar tjáðu þau hvorugt sig um málið og fór því slúðurmyllan á fullt.
Þrálátur orðrómur fór á kreik um að Drake og Bobbi hafi sofið saman, en samfélagsmiðlastjarnan er gift tveggja barna móðir.
Það var til þess að Bobbi rauf þögnina og vísaði því alfarið á bug en það er í fyrsta og eina skiptið sem hún hefur tjáð sig um málið.
„Ég vildi ekki taka þetta viðtal til að byrja með og nú er svo mikil neikvæðni að koma vegna þáttarins. Ég ætla ekki að tjá mig frekar um þetta en hér má sjá samtal mitt og Dave,“ sagði hún og birti skjáskot af samtali hennar við hlaðvarpsstjórnandann Dave Portnoy, sem sendi henni skilaboð og spurði hvort hún hafði sofið hjá Drake.
„Kærastan mín segir að þú hafir sofið hjá Drake og sért að skilja. Ég held að það sé ekki satt,“ sagði hann.
„Ég er ekki að tjá mig um þetta opinberlega en þú hefur rétt fyrir þér, það er ekki satt,“ svaraði hún.
Ástæðan fyrir því að Bobbi birti skjáskotið var því Dave greindi frá því í hlaðvarpsþætti sínum, BFFs podcast, að Bobbi hafi svarað honum og að hún vildi ekki tjá sig opinberlega, en það kom út eins og hún hafi játað framhjáhald. Sem hún gerði ekki eins og má sjá á skjáskotinu.
Eins og staðan er í dag þá vita aðdáendur ekki hvað gerðist í raun og veru milli Bobbi og Drake og af hverju hún eyddi þættinum út af YouTube og Spotify. Hún gaf út nýjan þátt í vikunni þar sem hún tók viðtal við rapparann Tyga.