fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fókus

Þetta eru LXS-dívurnar með í laun – Mikill munur milli vinkvenna

Fókus
Föstudaginn 18. ágúst 2023 08:56

LXS-skvísurnar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinkonurnar Sunneva Einarsdóttir, Birgitta Líf Björnsdóttir, Magnea Björg Jónsdóttir, Hildur Sif Hauksdóttir, Ína María Norðfjörð, Ástrós Traustadóttir og Kristín Pétursdóttir mynda vinsælasta áhrifavaldahóp landsins – LXS. Svo miklar eru vinsældir þeirra að önnur þáttaröð um vinahóp þeirra er á leiðinni á Stöð 2.

Það er þó mikill munur á tekjum vinkvennanna en sú launahæsta er með tæplega 1,2 milljónir en sú lægsta með 68 þúsund krónur á mánuði.

Sunneva Einarsdóttir

Sunneva Einarsdóttir er vinsælust í hópnum, með 56 þúsund fylgjendur á Instagram og í samstarfi við fyrirtæki á borð við Nocco, Nike og Marc Inbane. Hún heldur einnig úti vinsælu hlaðvarpi – Teboðið – ásamt Birtu Líf Ólafsdóttur og kom fram í raunveruleikaþáttunum #Samstarf hjá Stöð 2+ ásamt vinkonu sinni Jóhönnu Helgu Jensdóttur.

Miðað við greitt útsvar á síðasta ári má ætla að mánaðarlegar tekjur Sunnevu nemi 709.950 kr. á mánuði.

Hún hefur hækkað þó nokkur í gegnum árin. Árið 2020 voru mánaðartekjur hennar um 190 þúsund krónur og árið 2021 voru þær rétt undir 540 þúsund krónur á mánuði.

Mynd/Instagram

Birgitta Líf Björnsdóttir

Birgitta Líf er markaðstjóri World Class – auk þess að vera erfingi ræktarveldisins – og vinsæll áhrifavaldur. Hún átti skemmtistaðinn Bankastræti Club en seldi hann í byrjun sumars 2023.

Birgitta Líf er lang tekjuhæst LXS-dívanna með 1.198.910 kr. á mánuði.

Mynd/Instagram

Magnea Björg Jónsdóttir

Magnea Björg var lengi búsett í Beverly Hills í Bandaríkjunum þar sem hún rak lúxusbílaleigu og er með gráðu í samskiptafræði frá háskólanum í Santa Monica og BA gráðu í viðskiptafræði. Hún er með rúmlega 27 þúsund fylgjendur á Instagram.

Magnea hækkaði í launum milli ára. Hún var með 478.315 kr. á mánuði árið 2022. Til samanburðar var hún með 349.974 kr. á mánuði árið 2021.

Mynd/Instagram

Hildur Sif Hauksdóttir

Hildur Sif er með tæplega átta þúsund fylgjendur á Instagram og gat sér einnig gott orð sem bloggari árum áður. Hún er BSc-gráðu í sálfræði, hefur starfað sem samfélagsmiðlastjóri og flugfreyja. Hún flutti til London fyrir nokkrum árum.

Hún er með 319.550 kr. á mánuði miðað við greitt útsvar 2022.

Mynd/Instagram

Ína María Norðfjörð

Ína María er með rúmlega sjö þúsund fylgjendur á Instagram, hún er með háskólagráðu í sálfræði og hefur eins og vinkona sín starfað sem samfélagsmiðlastjóri.

Hún er launalægst vinkvennanna, með 68.009 kr. á mánuði miðað við greitt útsvar 2022.

Launin hafa verið svipuð síðastliðin ár. Árið 2020 var hún með rúmlega 40 þúsund krónur á mánuði og árið 2021 var hún með 72 þúsund krónur á mánuði.

Mynd/Instagram

Ástrós Traustadóttir

Ástrós er ekki aðeins áhrifavaldur heldur einnig vinsæll dansari og kannast margir landsmenn við hana úr vinsælu þáttunum Allir geta dansað á Stöð 2.

Hún er með 305.668 kr. á mánuði miðað við greitt útsvar á síðasta ári.

Mynd/Instagram

Kristín Pétursdóttir

Kristín hefur verið að gera það gott um árabil sem leikkona og áhrifavaldur auk þess sem hún hefur starfað sem flugfreyja. Hennar fyrsta verkefni sem leikkona var hlutverk í myndinni Órói árið 2010. Síðan þá hefur hún leikið í ýmsum verkefnum og auglýsingum, eins og þáttunum Fólkið í blokkinni og í leikritinu Mæður sem sló í gegn meðal gagnrýnenda.

Mánaðarlaun Kristínar voru 559.665 kr. á mánuði.

Um er að ræða útsvar hvers og eins og eru mánaðarlaun reiknuð út frá því. Upphæðirnar þurfa því ekki að endurspegla föst laun viðkomandi og til að mynda er sleppt skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Gögnin eru opinber fyrir fjölmiðla hjá Skattinum þessa dagana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 6 dögum

Svali lítur til baka á kostina og gallana við að flytja til Tenerife – „Að læra að sigrast á aðstæðum annars staðar“

Svali lítur til baka á kostina og gallana við að flytja til Tenerife – „Að læra að sigrast á aðstæðum annars staðar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þekktustu „besties“ landsins kynna nýtt verkefni – Frumsýning á háleynilegum stað í hjarta höfuðborgarinnar

Þekktustu „besties“ landsins kynna nýtt verkefni – Frumsýning á háleynilegum stað í hjarta höfuðborgarinnar