Einkaþjálfarinn Arnar Grant er með lægri laun en 14 ára unglingur sem vinnur á kassa í Bónus, samkvæmt launatöflu kjarasamnings VR.
Arnar Grant var með 133.710 kr. að meðaltali í mánaðarlaun árið 2022.
Hann var með aðeins hærri tekjur árið á undan, 167.808 kr. á mánuði.
Það er óhætt að segja að miðað við greitt útsvar lepur Arnar dauðann úr skel en 14 ára unglingar sem sinna afgreiðslu í verslunum eru með talsvert hærri laun, samtals 252.292 kr. á mánuði.