Maður sem handtekinn var fyrir nokkrum dögum, þ.e. þann 12. ágúst, grunaður um húsbrot og líkamsárás, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 8. september.
Maðurinn var handtekinn í kjölfar þess að tilkynning barst til lögreglu um ólæti frá íbúð í miðborg Reykjavíkur. Sjö mál eru til meðferðar gegn manninum frá því um miðjan marsmánuð. Var gæsluvarðhaldskrafan gerð á grundvelli c-liðar fyrstu málsgreinar 95. greinar laga um meðferð sakamála:
„Sakborningur verður því aðeins úrskurðaður í gæsluvarðhald að fram sé kominn rökstuddur grunur um að hann hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við, enda hafi hann náð 15 ára aldri. Auk þess verður að vera fyrir hendi eitthvert eftirtalinna skilyrða:“ – Þannig hljóðar fyrsta málsgreinin en c-liðurinn er eftirfarandi:
„að ætla megi að hann muni halda áfram brotum meðan máli hans er ekki lokið eða rökstuddur grunur leiki á að hann hafi rofið í verulegum atriðum skilyrði sem honum hafa verið sett í skilorðsbundnum dómi,“
Í gæsluvarðhaldsúrskurði Héraðsdóms frá 12. ágúst eru rifjuð upp þau brot sem maðurinn er grunaður um og eru núna til rannsóknar. Er það skrautlegur listi sem inniheldur þjófnað, húsbrot, líkamsárás og nekt á almannafæri.
Maðurinn er í fyrsta lagi grunaður um húsbrot, með því að hafa þann 16. mars, í félagi við annan mann, ruðst inn í geymslu í kjallara húss í Reykjavík og stolið þaðan Osprey-bakpoka, kassa af bjór, vínflöskum, Titan-útilegutösku, útileguljósi og verkfærum.
Hann er sakaður um mörg önnur þjófnaðarbrot en hann er einnig grunaður um að hafa valdið hneykslun á almannafæri snemma í júlímánuði:
„Kærði er undir rökstuddum grun um brot gegn lögreglusamþykkt, með því að hafa mánudaginn 10. júlí 2023, utandyra við […] í Reykjavík, valdið hneykslan á almannafæri er hann skreið allsnakinn um garðinn við húsið og var að tína gras.“
Þann 15. ágúst staðfesti Landsréttur gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur og verður maðurinn í gæsluvarðhaldi til 8. september næstkomandi.
Sjá nánar hér.