fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Fréttir

Birna heppin að vera á lífi eftir alvarlegt slys á Hopp-hjóli – „Ég finnst rotuð og meðvitundarlaus á gangstétt“

Björn Þorfinnsson
Þriðjudaginn 15. ágúst 2023 13:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birna Baldursdóttir, íþróttafræðingur og framhaldsskólakennari, er heppin að vera á lífi eftir að hafa lent í alvarlegu slysi á Hopphjóli  aðfaranótt sunnudagsins 6. ágúst síðastliðinn. Hún segist upplifa mikla skömm yfir því að hafa ákveðið að leigja rafskútuna þegar hún var undir áhrifum áfengis á heimleið úr gleðskap en hafi ákveðið að opna sig um málið svo aðrir geti lært af hennar reynslu.

Fékk flogakast af völdum heilablæðingar

Í einlægri Facebook-færslu þar sem Birna þakkar vinum sínum og aðstandendum fyrir hlýhug sinn fer hún yfir síðustu daga.

„Ég man auðvitað ekkert eftir byrjuninni á atburðarásinni en eins og þið hafið hugsanlega heyrt þá tók ég þá fáránlegu ákvörðun og leigði hopphjól ein á heimleið úr partýi þrátt fyrir að vera í glasi.
Það versta sem gerist er að ég finnst rotuð og meðvitundarlaus á gangstétt eftir að hafa dottið. Það er bláókunnugt, yndislegt fólk sem kallar eftir hjálp,“ skrifar Birna.

Hún var flutt með sjúkrabíl á Sjúkrahúsið á Akureyri en þar fékk hún flogakast á gjörgæslunni vegna heilablæðingar. Færir læknar sjúkrahússins björguðu hins vegar lífi hennar og en Birna var höfuðkúpu-, kinnbeins- og kjálkabrotin eftir slysið.

Hefði átt að vita betur

Birna segist afar þakklát starfsfólki spítalans fyrir lífsbjörgina og segist vera staðráðinn í því að læra af reynslunni.

„Ég finn ennþá stinginn í hjartanu sem ég fékk þegar læknirinn er að tilkynna mér þessi meiðsli dagana á eftir þegar ég vakna af og til en ég hélt í alvörunni að hann væri að grínast í hvert skipti,“ skrifar Birna.

Hún segist skammast sín mikið enda „framhaldskólakennari, íþróttakona, móðir, dóttir og vinkona sem ætti að vita betur sem ákveðin fyrirmynd.“

Vonar að frásögnin verði öðrum víti til varnaðar

„En þessi fortíðarákvörðun er búin og þótt ég skilji satt og segja ekki ennþá afhverju ég tók Hopphjólið þá vona ég svo sannarlega að ENGINN geri slíkt hið sama þar sem ég mun aldrei gera það aftur,“ skrifar Birna.

Hún er útskrifuð af spítalanum eftir slysið en þó sé langt í land með að hún nái fullum bata. „Ég er mikið sofandi útaf verkjum en finn alltaf betri dagamun á mér dag frá degi,“ segir Birna í samtali við DV og segist vona að frásögn hennar verði öðrum víti til varnaðar. Helst vilji hún brýna fyrir fólki að nota hjálma á rafskútum og alls ekki stíga á slíka farskjóta þegar áfengi er haft um hönd.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ingólfur Kjartansson dæmdur í átta ára fangelsi

Ingólfur Kjartansson dæmdur í átta ára fangelsi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ætluðu að slaka á í Sky Lagoon en annað kom á daginn – „Vá! Þetta er brjálað“

Ætluðu að slaka á í Sky Lagoon en annað kom á daginn – „Vá! Þetta er brjálað“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ristaðar möndlur og jólasveinar í Bónus

Ristaðar möndlur og jólasveinar í Bónus
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sigurði Árna lögreglumanni ekki gerð refsing fyrir ofbeldi gegn fanga – „Við verðum skelkaðir í aðstæðum og gerum mistök“

Sigurði Árna lögreglumanni ekki gerð refsing fyrir ofbeldi gegn fanga – „Við verðum skelkaðir í aðstæðum og gerum mistök“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Síbrotamaður slær ekki slöku við þrátt fyrir margra liða ákæru – Fær gistingu í boði skattgreiðenda yfir hátíðarnar

Síbrotamaður slær ekki slöku við þrátt fyrir margra liða ákæru – Fær gistingu í boði skattgreiðenda yfir hátíðarnar