En Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segist telja að við séum nú komin á eldvirknitímabil sem sé ekki sérstaklega bundið við Reykjanesskaga. Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag.
Að undanförnu hefur fjöldi jarðskjálfta orðið á Vesturgosbeltinu og er fjöldinn fordæmalaus þegar litið er til síðustu ára. „Það hafa verið sett spurningarmerki við skilgreiningarnar á gosbeltunum. Það getur alveg verið að lifna við þarna í Vesturgosbeltinu. Hvort það tengist Reykjanesskaganum er aftur á móti óljósara,“ hefur Morgunblaðið eftir honum.
Rúmlega 500 skjálftar hafa mælst á Vesturgosbeltinu það sem af er ári og eru það fleiri skjálftar en mælst hafa árlega síðustu þrettán árin. Flestir skjálftanna hafa átt upptök sín skammt suðaustur af fjallinu Skjaldbreið á frekar afmörkuðu svæði. Gosbeltið er 120 km á lengd og nær frá Þingvöllum norður fyrir Langjökul.
Hann sagði að sumt bendi til þess að möttulstrókurinn undir landinu sé að eflast. „Ég tel líklegt að miðjan og mesti krafturinn í möttulstróknum sé við Vatnajökul þar sem nokkrar af virkustu eldstöðvum landsins eru. Síðan er náttúrulega Katla þarna fyrir sunnan, sem er virkasta eldstöð landsins ef við lítum til framleiðni á kviku í eldgosum,“ sagði hann.