Jakob Frímann Magnússon, alþingis- og tónlistarmaður var óvæntur gestur á tónleikum hljómsveitarinnar Vinir vors og blóma á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í gærkvöldi.
Í tilkynningu sem barst DV kemur fram að Jakob lék á hljómborð með sveitinni en brast svo í einsöng með aðstoð sveitarinnar þegar hann kyrjaði lagið Víst er fagur Vestmannaeyjabær sem er sagt eiga sérstakan stað í hugum Eyjamanna og margir kalla þjóðsöng þeirra. Lagið er eftir Jakob og kemur fyrir í stórmyndinni Með allt á hreinu. Eins og við var að búast sungu kvöldvökugestir Þjóðhátíðarinnar undir svo glumdi í Herjólfsdal.
„Mér þykir alltaf vænt um að koma til Vestmannaeyja og spila. Þetta var sérstakt tilefni í framhaldi af mjög fallegu verkefni sem ég tók þátt í með þeim í byrjun sumars,“ sagði Jakob Frímann um aðdraganda þess að hann birtist óvænt í Eyjum í gær.„Ég er auðvitað vanur að koma hér með mínum Stuðmönnum og þannig var þetta öðruvísi lífsreynsla fyrir mig en jafn falleg engu að síður.“
Jakob hefur áður spilað með Vinum vors og blóma. Í vor hélt hljómsveitin minningartónleika um Njál Þórðarson hljómborðsleikara sveitarinnar sem lést eftir hetjulega baráttu við krabbamein fyrir nokkrum árum.
Tónleikarnir voru haldnir í Háskólabíói og var fullt út úr dyrum og allur aðgangseyrir var nýttur til styrktar stuðningsfélaginu Krafti sem beitir sameinuðum kröftum sínum til að aðstoða og styðja ungt fólk, sem greinst hefur með krabbamein, og aðstandendur þess.