„Við rétt náðum að forða okkur og maðurinn minn kallar á þá að hægja á sér. Þá snarstansa þeir, voru tveir ungir menn, og ganga mjög ógnandi að okkur. Annar þeirra dregur upp stóran hníf og ógnar manni mínum með hnífinn á loftinn og heimta verðmæti. Þeir rændu manninn en höfðu minni áhuga á mér og ég slapp. Síðan fara þeir í burtu,“ segir kona, íbúi í hverfi 108 í Facebook-hópi íbúa hverfisins. Voru hún og eiginmaður hennar á göngu við Grímsbæ við Bústaðarveg þegar þau mættu tveimur mönnum á vespu á ógnarhraða.
Segir konan að lögreglan hafi verið fljótt á vettvang og hafi mennirnir verið handteknir.
Vakthafandi varðstjóri á lögreglustöðinni á Hverfisgötu staðfestir við Vísi að mennirnir hafi verið handteknir. Eftir að hafa rænt hjónin í Fossvogi óku mennirnir á vespunni í Hamraborg í Kópavogi þar sem þeir frömdu annað rán. Enginn særðist við ránin og tókst að endurheimta allavega hluta ránsfengsins. Varðstjóri gat ekki staðfest hvers konar vopn mennirnir báru.
Hinir handteknu voru 18 og 21 árs, fyrra ránið var framið við Grundarland þar sem þeir veittust að hjónum á sjötugsaldri og rændu snjallsíma og úri af manninum. Seinna ránið var framið korteri seinna við Hamraborg, þar sem þeir rændu 35 þúsund krónum af konu á sextugsaldri sem var að taka fé úr hraðbanka. Fyrra atvikið var tilkynnt til lögreglu klukkan 11.42 og það seinna klukkan 11.57. Drengirnir voru handteknir í Mjódd.
„Þetta er náttúrulega bara hræðileg upplifun fyrir þetta fólk, hvernig er veist að þeim,“ segir Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is. Vopnið reyndist eldhúshnífur, en drengirnir voru ekki með peningana á sér þegar .eir voru handteknir.
„Þessi mál eru náttúrulega bæði í rannsókn og lögregla aflar gagna í þessum málum og þeir eru í okkar haldi og bíða þess náttúrulega síðan að vera yfirheyrðir þegar við erum tilbúin til þess.“