Í vikunni greindu miðlar frá því að bandaríska tónlistarkonan Ariana Grande og fasteignasalinn Dalton Gomez væru að skilja eftir tveggja ára hjónaband. Grande var þó ekki lengi kona einsömul og er hún sögð komin með nýjan mann í líf sitt, leikarann Ethan Slater.
Sjá einnig: Ariana Grande skilin
Slater var snöggur til að breyta stillingum á Instagram-reikningi sínum eftir að sögur um sambandið fóru á kreik og nú geta aðeins fylgjendur hans, sem eru um 84 þúsund, séð hverju kappinn póstar þar.
Grande og Slater kynntust við tökur á kvikmyndinni Wicked, sem sýnd verður á næsta ári, en sögur herma að þau hafi byrjað samband sitt fyrir nokkrum mánuðum. Þegar leikarahópurinn fór út að skemmta sér í London í mars, til að fagna því að Michelle Yeoh fékk Óskarsverðlaun, má sjá parið sitja saman og Slater halda utan um Grande.
Ethan er einnig nýlega skilinn, en hann giftist söngkonunni Lilly Jay árið 2018 og eignuðust þau son í fyrra. Í maí póstaði hann færslu á Instagram þar sem hann dásamar og óskar bestu konu/manneskju í lífi þeirra feðga til hamingju með mæðradaginn.