Kári Stefánsson snupraði Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, og sýndi fram á að hún er ekki að vinna vinnuna sína. Sama gildir um þingheim allan sem á að setja okkur nothæf lög á sviði sjávarútvegsmála og annarra málaflokka.
Þetta skrifar Ólafur Arnarson í Dagfarapisli á Hringbraut. Hann víkur að ávarpi Kára á mótmælafundi strandveiðisjómanna við Alþingishúsið á laugardag og rifjar upp ræðu Kára á sjómannadeginum í Grindavík fyrir skemmstu.
Ólafur segir vanda Svandísar aukast jafnt og þétt, hún virðist hafa tekið ákvörðun um að stöðva hvalveiðar í einhverju frekjukasti og sýnt hafi verið fram á að trúlega hafi hún brotið lög, starfsreglur og jafnvel stjórnarskrána. Klárlega hafi hún brotið meðalhófsregluna með því að stöðva veiðar einungis sólarhring áður en þær áttu að hefjast.
Hann vitnar í að Kári sagðist í ræðu sinni á Austurvelli vera gamall sósíalisti sem aldrei hefði horfið frá þeirri hugsjón og veltir fyrir sér hvort Svandís eða Katrín Jakobsdóttir muni nokkuð lengur eftir sósíalisma þegar þær virðist hugsa um það eitt að halda sjálfum sér við völd á ráðherrakjörum.
í niðurlagi Dagfarapistilsins segir að gamli sósíalistinn hafi einnig sent ýmsum jafnöldrum sínum og samferðamönnum vænar sneiðar með því að hafa skapað mörg hundruð störf með frumkvöðulsstarfi sínu hjá Íslenskri erfðagreiningu á meðan helstu talsmenn frjálshyggjunnar hafi einungis verið styrkþegar og þiggjendur en aldrei lagt einkaframtakinu neitt til sjálfir.
Dagfara í heild má lesa hér.