Þegar raforkulögin voru sett 2005 gleymdist að tryggja rétt neytenda til rafmagns. Fram til þess hafði Landsvirkjun borið ábyrgð á því.
Að sögn Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar, reynir Landsvirkjun að gæta þess að heimili og smærri fyrirtæki eigi ávallt kost á stöðugri orku á lágu verði en Landsvirkjun skilar aðeins helmingi af þeirri orku sem fer inn á þann markað og Hörður segist ekki vera viss um að önnur orkufyrirtæki skilgreini hlutverk sitt eins. Hörður er í viðtali við Ólaf Arnarson í hlaðvarpi Markaðarins á Eyjunni í þessari viku.
Hörður fagnar því að Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra, hafi stigið skref til þess að tryggja örugga og stöðuga orku til heimila og smærri fyrirtækja.
Hann segir miklu máli skipta að rétt sé að því staðið að tryggja orku til íslenskra heimila. Til séu leiðir til að gera þetta án mikillar sóunar og kostnaðarauka í orkukerfinu og mikilvægt sé að velja hagkvæmar lausnir vegna þess að verði þetta gert á óhagkvæman hátt muni kostnaðurinn lenda á notendum; heimilum og fyrirtækjum.