fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Varaþingmaður VG hjólar í Svandísi

Eyjan
Föstudaginn 14. júlí 2023 14:30

Lilja Rafney er ósátt við ákvörðun Svandísar um að stöðva Strandveiðar og telur hana ógna minni byggðum landsins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaþingmaður VG, fer í aðsendri grein á Eyjunni í dag hörðum orðum um þá ákvörðun flokkssystur hennar, Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, að auka ekki aflaheimildir til strandveiða og þar með í raun banna strandveiðar frá og með þessari viku.

Lilja Rafney, sem á síðasta kjörtímabili var formaður atvinnuveganefndar Alþingis og leiddi þverpólitíska vinnu um endurskoðun Strandveiðikerfisins, segist svíða það sárt „að horfa upp á getu- og viljaleysið við að tryggja aflaheimildir í 48 daga út ágúst og að þetta sé í fyrsta skiptið þegar þörf hefur verið til að engu sé bætt við Strandveiðipottinn!“

Hún segir Strandveiðar vera stóran þátt í atvinnu- og menningu minni sjávarbyggða sem ekki megi glatast og hverfa inn í enn frekari samþjöppun stórútgerðanna. Nú sé hins vegar skellt í lás og fleiri hundruð manns gerð atvinnulaus með tilheyrandi afleiðingum fyrir fólkið og sjávarbyggðirnar.

Lilju Rafney kemur ekki á óvart að sjómenn rísi nú upp og mótmæli aðgerðaleysi stjórnvalda við að efla og tryggja Strandveiðar við Alþingishúsið á morgun, en boðað hefur verið til mótmæla. Gengið verður frá Hörpu kl. 12 að Alþingishúsinu. Þar mun Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar flytja ávarp og KK flytja nokkur lög, auk þess sem fleiri atriði verða á dagskránni.

Hún  segir það í valdi ráðherra hverju sinni hvernig hann vinnur úr vísindaráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar og hvort hann forgangsraði í þágu smærri útgerða sem ekki hafa þol fyrir mikla ágjöf og hafa lítið í stórútgerðirnar að gera sem komnar eru með stærstan hluta aflaheimilda. Hún bendir á að lítið bóli á rannsókn stjórnvalda hvort einhverjar þeirra séu komnar yfir leyfileg kvótaþök.

Lilja Rafney bendir á að Strandveiðar séu umhverfisvænustu veiðar sem til eru og að Sameinuðu þjóðirnar leggi sérstaklega áherslu á sjálfbærar veiðar, ekki síst handfæraveiðar.

Grein Lilju Rafneyjar í heild má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á