fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Fréttir

Birti myndband af stórhættulegum framúrakstri þar sem litlu mátti muna – Samskip segjast líta málið alvarlegum augum

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 11. júlí 2023 20:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðdegis í dag birtist myndband á Facebook sem sýnir hvar flutningabifreið á vegum Samskipa sýnir af sér töluverðan glannaskap við framúrakstur.

Myndbandinu deildi Arna Sjöfn Ævarsdóttir, og merkti hún Samskip með færslunni til að vekja athygli á málinu. Arna bendir í færslu sinni, sem hún veitti DV góðfúslega leyfi til fjalla um, að svona hættir í umferðinni séu stórhættulegir og hafi téður bílstjóri stefnt vegfarendum í hættu.

Færslan er eftirfarandi, en slóð á hana má finna hér neðst í fréttinni.

„Í dag klukkan 16:10 var stór sendiferðabíll frá Samskip Ísland sem reyndi að taka fram úr mörgum bílum á þröngum vegi utan þéttbýlis þar sem skyggnið er hræðilegt. Þetta myndband er tekið á milli Borgarnes og Munaðarnes.

Við sáum hann fyrir aftan okkur reyna og reyna að færa sig um akrein til þess að taka fram úr. Sáum við bílinn koma á móti en skil ég ekki hvers vegna hann sá bílinn ekki þar sem hann var á margfalt stærri bíl. Vill taka það fram að við vorum öll að keyra á um 80 kmh á 90 vegi.

Vorkenni ég virkilega fólkinu sem kom keyrandi á móti manninum sem rétt náðu að skjóta sér frá og einnig þeim sem voru fyrir framan okkur á rauða bílnum sem var þrýst í það að sveigja sér næstum því útaf veginum til þess að bjarga sér frá stórskaða.

Email hefur verið sent á Samskip ásamt skilaboðum hér á Facebook.
Svona hættir í umferðinni eru stór hættulegir og setti hann mikið af fólki í hættu.

Ég set þetta hér fyrir fólk til þess að deila þar sem þessi einstaklingur á aðeins skilið að missa réttindin sín eftir svona fávitaskap.“

DV leitaði viðbragða hjá Þórunni Ingu Ingjaldsdóttir, forstöðumanni markaðs- og viðskiptasviðs Samskipa, vegna málsins. Þórunn segir  atvikið í engu samræmi við verklag Samskipa og að málið sé litið alvarlegum augum. Búið er að ræða við umræddan bílstjóra og er verið að skoða næstu skref.

„Við hörmum þetta atvik, þetta er engan vegin í samræmi við verklag Samskipa og lítum við þetta mjög alvarlegum augum. Búið er að ræða við bílstjórann og verið er að skoða næstu skref.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ruddalegur akstur vekur athygli. Fyrir rúmu ári síðan birtist myndband sem sýndi glæfralegan akstur sendibíls á vegum Eimskipa á Sæbrautinni. Sendibíllinn svínaði fyrir bifreið, keyrði yfir á aðrein upp  Miklubraut og mátti litlu muna að árekstur hlytist af háttseminni. Var Eimskipum verulega brugðið vegna málsins og hlaut bílstjórinn tiltal.

Sjá einnig: Glannaakstur sendibíls Eimskips olli næstum því alvarlegu slysi – „Við hörmum atvikið“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn systur sinni á árunum 2003 til 2007

Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn systur sinni á árunum 2003 til 2007
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Vilhjálmur bendir á hvað vaxtahækkun Íslandsbanka þýðir fyrir 45 milljóna króna lán

Vilhjálmur bendir á hvað vaxtahækkun Íslandsbanka þýðir fyrir 45 milljóna króna lán
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Sigurður Ingi skýtur hugmynd Miðflokksins í kaf: „Já, þetta er vitlaus hugmynd“

Sigurður Ingi skýtur hugmynd Miðflokksins í kaf: „Já, þetta er vitlaus hugmynd“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Gosið fór yfir Grindavíkurveg í nótt – Fer 300 metra á klukkustund

Gosið fór yfir Grindavíkurveg í nótt – Fer 300 metra á klukkustund
Fréttir
Í gær

Ákærð fyrir stórfellda líkamsárás á starfsmann Vinakots

Ákærð fyrir stórfellda líkamsárás á starfsmann Vinakots
Fréttir
Í gær

Salka Sól sendir borgarstjóra væna pillu – „Þú situr bara víst við þetta samningsborð Einar!“

Salka Sól sendir borgarstjóra væna pillu – „Þú situr bara víst við þetta samningsborð Einar!“
Fréttir
Í gær

Nýju gögnin í Geirfinnsmálinu eiga að fara til Keflavíkur – „Þarna var sáð fræi sem varð að mesta réttarmorði Íslandssögunnar“

Nýju gögnin í Geirfinnsmálinu eiga að fara til Keflavíkur – „Þarna var sáð fræi sem varð að mesta réttarmorði Íslandssögunnar“
Fréttir
Í gær

Enn fækkar í Þjóðkirkjunni og fjölgar í Siðmennt

Enn fækkar í Þjóðkirkjunni og fjölgar í Siðmennt